Skoðun

Viltu Nýjan Landspítala vð Hringbraut?

Þóra Andrésdóttir skrifar
Ef ekki, ættir þú að senda inn athugasemdir til skipulag@reykjavik.is í síðasta lagi 20. september, annars telst þú samþykkur.

Kostnaður á bara 1. áfanga Nýs Landspítala við Hringbraut kostar yfir 50 milljarða en ekki er vitað hver heildarkostnaðurinn verður. Aukin umferð gæti kallað á kostnaðarsamar vegaframkvæmdir, t.d. Miklabraut í stokk, Öskjuhlíðargöng, göng undir Kópavog og jafnvel Holtsgöng. Væri ekki nær að byrja á því að kaupa nauðsynleg tæki sem vantar, sem kostar aðeins 3 milljarða?

Staðsetning nýs Landspítala við Hringbraut tel ég óásættanlega. Fyrirhugaðar nýbyggingar eru of umfangsmiklar og byggingarmagnið alltof mikið við hliðina á gömlu og grónu íbúðahverfi. Gamli Landspítalinn verður innikróaður og sést ekki nema fólk standi beint fyrir framan þessa fallegu byggingu Guðjóns Samúelssonar. Sjónás að Háskóla Íslands skerðist líka. Byggingar gamla spítalans eru taldar úreltar og lélegar, af hverju þá að nota þær áfram og byggja við þær? Það kostar a.m.k. 11 milljarða að gera þær upp. Það þarf langa ganga og undirgöng til að tengja þær við nýju byggingarnar. Þaðer erfitt að flytja sjúkling sem er tengdur við mörg tæki langar leiðir. Vegalengdir geta kostað sjúklinga lífið. Í hærri spítalabyggingu væri hægt að hafa nokkrar lyftur, en þær eru til mikilla þæginda. Það væri hægt að selja gömlu byggingarnar upp í kostnað á nýjum, hærri spítala annars staðar.

-Umferðarkerfið þolir ekki meira. Í tillögum er gert ráð fyrir að fólk gangi, hjóli eða taki strætó. Þó starfsfólk vildi, þarf það oft t.d. að skutla börnum og ná í, fyrir og eftir vinnu, og verða því að vera á bíl. Veður hefur einnig áhrif. Ekki væri gott að lenda í hjartastoppi á mesta umferðartíma þegar sekúndur skipta máli. Sjúkrabíll sem kemur utan af landi þarf að fara í gegnum alla umferðina til að komast að spítalanum. Þyrluflugmenn og sjúkraflutningamenn hafa lýst yfir áhyggjum af aðkomunni. Aukinni umferð fylgir meiri mengun og hávaði. Svifryk mælist nú þegar oft yfir hættumörkum og er hættuleg lungnasjúklingum. Verður ekki hægt að lofta út? Meðan á framkvæmdum stendur verða starfsfólk og sjúklingar fyrir ónæði sem hefur áhrif á bata.

-Hlutdeild sjötugra og eldri eru talin muna hafa aukast um 40 prósent árið 2025. Það hefur verið ein af ástæðum byggingu nýs spítala. En Landspítalinn er tepptur af fólki sem er búið að fá bráðameðferð og kemst ekki heim vegna lélegs ástands, en kemst ekki annað. Verður það ekki líka þannig á nýja spítalanum? Það er dýrt að láta fólk liggja í dýrum plássum á bráðaspítala eftir meðferð, af því það kemst ekki inn á hjúkrunarheimili sem er margfalt ódýrara. Á meðan bíður fólk eftir því að leggjast inn eða komast í aðgerðir. Sumir geta ekki unnið á meðan og það er dýrt fyrir þjóðfélagið. Kannski væri betra að byggja fyrst hjúkrunarheimili?

Nálægð spítalans við Háskóla Íslands skiptir litlu. Flýtum okkur hægt, það er ekki 2007. Við erum litil þjóð, miðum spítala okkar við það. Það sem skiptir máli er að veita góða heilbrigðisþjónustu.

Höfundur er íbúi í miðborginni.




Skoðun

Sjá meira


×