Íslendingar í fangelsi vegna innflutnings á e-töflum Erla Hlynsdóttir skrifar 2. september 2012 18:30
Tveir íslenskir karlmenn hafa verið dæmdir í fangelsi í Danmörku fyrir innflutning á 25 þúsund e-töflum. Þeir sátu í gæsluvarðhaldi síðasta hálfa árið. Fréttastofa sagði fyrst frá málinu í marsmánuði. Þá kom fram að mennirnir væu í varðhaldi og að annar þeirra hefði þegar játað. Þeir eru báðir á fertugsaldri og hafa verið búsettir í Kaupmannahöfn undanfarin ár. Mennirnir voru handteknir á Kastrupflugvelli við komu frá Bretlandi í febrúar. Þeir höfðu þá í fórum sínum um fimm kíló af e-töflum, eða 25 þúsund töflur. Götuvirði efnanna á Íslandi væri ríflega 60 milljónir króna. Til að setja magnið frekar í samhengi þá lagði lögreglan á Suðurnesjum hald á um 67 þúsund e-töflur allt síðasta ár, en 15 þúsund árið þar á undan. Dómurinn yfir mönnunum féll í Kaupmannahöfn á föstudag. Annar þeirra var dæmdur fyrir aðild að smyglinu og fékk fimm ára fangelsisdóm. Samkvæmt heimildum fréttastofu fékk hinn átta ára dóm, en það hefur ekki fengist staðfest. Heimildir fréttastofu herma að sá sem vægari dóminn fékk hafi verið háskólamenntaður og vegnað vel í lífinu þar til hann ánetjaðist fíkniefnum. Báðir voru mennirnir í fíkniefnaneyslu og leigðu saman þar til þeir voru teknir. Þrátt fyrir að hafa setið í varðhaldi í hálft ár leituðu mennirnir aldrei aðstoðar íslenskra yfirvalda, og kom málið því hvorki inn á borð íslenska sendiráðsins í Kaupmannahöfn, né íslenska utanríkisráðuneytisins.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Fleiri fréttir Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Sjá meira