Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - Stjarnan 0-2 Stefán Árni Pálsson skrifar 2. september 2012 00:01
Stjarnan vann frábæran sigur, 2-0, á Val að Hlíðarenda í kvöld en bæði mörk liðsins komu í fyrri hálfleik. Liðið komst því í þriðja sætið og skaust upp fyrir ÍBV og ÍA en Stjarnan er sem stendur með 29 stig, aðeins tveimur stigum á eftir KR. Valsmenn byrjuðu leikinn betur og fengu nokkur ákjósanleg færi fyrstu tuttugu mínútur leiksins en náði ekki að koma boltanum í netið en Ingvar Jónsson, markvörður Stjörnunnar, varði eins og skepna í leiknum og Valsmenn komust einfaldlega ekki framhjá Ingvari. Það var síðan Gunnar Örn Jónsson sem gerði fyrsta mark Stjörnunnar eftir 25 mínútna leik þegar hann stýrði boltanum laglega framhjá Sindra Snæ í marki Vals eftir sendingu frá Alexander Scholz. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins átti Atli Jóhannsson magnaða stungusendingu inn fyrir vörn Valsmann á Kennie Knak Chopart sem afgreiddi boltann snyrtilega í netið. Valsmenn reyndu hvað þeir gátu í síðari hálfleiknum en allt kom fyrir ekki og þeir náðu ekki að setja mark sitt á leikinn. Niðurstaðan því 2-0 sigur Stjörnunnar sem halda áfram að ná í stig á útivelli. Valur heldur aftur á móti áfram að vera óstöðugt lið sem á í erfileikum með að vinna tvo leiki í röð. Ingvar Jónsson: Þetta var minn besti leikur í sumar„Það var gríðarlega mikilvægt að halda markinu hreinu í kvöld," sagði Ingvar Jónsson, markvörður Stjörnunnar, eftir sigurinn í kvöld. „Það var einnig mjög mikilvægt að ná inn öðru marki rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins og fara með væna forystu inn í klefa". „Ég hrök í gang þegar ég lenti í samstuði í byrjun leiksins, þetta var líklega besti leikurinn minn í sumar. Við ætlum okkur að ná í þetta Evrópusæti, það er alveg á hreinu." Hægt er að sjá myndband af viðtalinu hér að ofan. Atli Sveinn: Við nýttum ekki okkar færi á meðan hlutirnir gengu upp hjá þeim„Við höfum alveg spilað verra í sumar en þetta féll bara ekki með okkur í kvöld," sagði Atli Sveinn Þórarinsson, leikmaður Vals, eftir tapið í kvöld. „Ingvar var okkur erfiður í markinu og við áttum erfitt með að komast framhjá honum. Við nýttum ekki okkar færi í leiknum á meðan þeir gerðu hið andstæða, það þýðir ekki að dvelja við það og við þurfum bara að halda áfram." „Þetta er virkilega þéttur pakki í deildinni og við ætlum okkur ennþá að þoka okkur aðeins ofar."Hægt er að sjá myndband af viðtalinu með því að ýta hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Gerði „óvart“ merki rasista en slapp með skrekkinn Fótbolti Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf Hetjan grét vegna mömmu, afa og ömmu Fótbolti „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Íslenski boltinn Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Fótbolti Segir raunhæft að Þjóðarhöllin verði risin árið 2030 Sport Sterkasti læknir landsins Sport Gylfi gerði nýjan samning við Víking Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hvernig sem úrslitin lenda þá skilgreinir það ekki sumarið“ Svona verður útsending Sýnar Sport í kringum stórleiki kvöldsins Sjáðu Fram sækja sigur í sjö marka leik gegn KA Gylfi gerði nýjan samning við Víking „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Ætlar ekki að leggjast niður fyrir Víkinga og fara að grenja Uppgjörið: KA - Fram 3-4 | Mörkunum rigndi á Akureyri í sigri Fram Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Mark dæmt af KA eftir að Framari braut á Framara Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Fóru yfir helstu vonbrigðin á tímabilinu Yfirlýsing Fylkis: Biðjast afsökunar og lofa að taka hart á málinu Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ „Smá þolinmæði sem þarf“ „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Sjá meira