Innlent

Eldsvoði í potti

BBI skrifar
Litlu munaði að illa færi þegar eldur kviknaði í potti sem stóð á eldavél á gistiheimili á Veghúsastíg í kvöld. Slökkviliðið var kallað til vegna reykjar. Einn dælubíll var sendur á staðinn og þegar þangað kom var mikill hiti og reykur í umræddu herbergi. Slökkviliðinu tókst að slökkva eldinn áður en hann barst úr pottinum.

Ekki er vitað nákvæmlega um tildrög eldsvoðans en allar líkur á því að gestir á gistiheimilinu hafi gleymt pottinum á hellunni og yfirgefið gistiheimilið. Engan sakaði og slökkviliðinu gekk vel að reykræsta híbýlin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×