Innlent

Þjóðgarðsvörður fylgir forsætisráðherrum um Þingvelli

JMG og JHH skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ásamt Helle Thorning-Schmidt forsætisráðherra Danmerkur.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ásamt Helle Thorning-Schmidt forsætisráðherra Danmerkur. mynd/ jmg
Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, fékk það hlutverk að sýna Helle Thorning-Schmidt þjóðgarðinn þegar hún kom þangað um eittleytið í dag.

Thorning-Schmidt skoðaði meðal annars nýja göngubrú yfir Almannagjá. Hún og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra Íslands, munu svo funda saman í Þingvallabústaðnum á eftir.

Þær Helle Thorning-Schmidt og Jóhanna Sigurðardóttir eiga það sameiginlegt að vera fyrstu konurnar sem urðu kjörnar forsætisráðherrar í sínum ríkjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×