18 ára strákarnir unnu Svartfjallaland - tveir sigrar í tveimur leikjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2012 22:34 Íslenska 18 ára landsliðið. Mynd/Fibaeurope.com
Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta byrjar vel í b-deild Evrópukeppni 18 ára landsliða sem stendur nú yfir í Bosníu. Íslenska liðið fylgdi á eftir sigri á Sviss í gær með því að vinna sannfærandi 12 stiga sigur á Svartfellingum í dag, 80-68. KR-ingurinn Martin Hermannsson var stigahæstur eins og í fyrsta leiknum á móti Sviss en hann skoraði 19 stig í kvöld. Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson var með 15 stig. 5 fráköst og 7 stoðsendingar og þá var nýi Snæfellingurinn Stefán Karl Torfason með 13 stig og 6 fráköst. Valur Orri Valsson frá Keflavík var mjög öflugur og setti 11 stig og tók 5 fráköst og gaf 4 stoðsendingar en hann setti nokkur „stór" skot í leiknum. Íslenska liðið var tveimur stigum yfir í hálfleik, 37-35, en munurinn var orðinn ellefu stig, 66-55, fyrir lokaleikhlutann þar sem sigurinn var aldrei í hættu. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari íslenska liðsins, er greinilega að gera flotta hluti með strákana. Ísland og Svíþjóð hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í riðlinum en íslenska liðið mætir Noregi á morgun. Finnar eru einnig með í þessum riðli en þeir töpuðu fyrir Svartfjallalandi í fyrsta leik.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Fótbolti Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Fótbolti Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Körfubolti Allur leikmannahópurinn saman í þjóðsöngvunum Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira