Íslenski boltinn

Fimm lið án lykilmanna á mánudaginn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Haukur Páll Sigurðsson
Haukur Páll Sigurðsson
Fimm lið í Pepsi-deild karla verða án lykilmanna í 16. umferð Pepsi-deildar karla sem hefst á mánudagskvöld. Leikmennirnir taka út leikbönn.

Grindvíkingar verða án þriggja leikmanna í botnslagnum gegn Selfossi suður með sjó. Marko Valdimar Stefánsson og Pape Mamadou Faye taka út eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda. Alexander Magnússon tekur einnig út eins leiks refsingu vegna sjö gulra spjalda.

Selfyssingar verða einnig án miðvarðarins og fyrirliðans Stefáns Ragnars Guðlaugssonar sem hefur safnað fjórum gulum spjöldum.

Andri Þór Jónsson og Ásgeir Börkur Ásgeirsson verða í banni í er liðið sækur Valsmenn heim. Miðjumaðurinn Haukur Páll Sigurðsson verður af sömu ástæðu ekki til taks í liði Vals en allir þrír hafa fengið fjögur gul spjöld í sumar.

Samuel Hewson tekur út eins leiks bann hjá Fram sem tekur á móti Breiðabliki á Laugardalsvelli. Ingvar Kale tekur sömuleiðis út síðari leik sinn í banni eftir rauða spjaldið sem hann hlaut í 4-3 sigrinum á Val í 14. umferð.

Þá verða Keflvíkingar án reynsluboltans Jóhanns Birnis Guðmundssonar er liðið sækir ÍBV heim.

Hannes Þór Halldórsson hjá KR og Tómas Joð Þorsteinsson hjá Fylki voru úrskurðaðir í eins leiks bann fyrir brottvísanir sínar. Þeir hafa þó þegar tekið út sína refsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×