Íslenski boltinn

Jóhann Laxdal ræðir um úrslitaleik Borgunarbikarsins

Jóhann Laxdal, leikmaður Stjörnunnar ræddi við Hjört Hjartarson um úrslitaleikinn í Borgunarbikarnum gegn KR sem fram fer í dag á Laugardalsvelli. Stjörnumenn og Garðbæingar eru spenntir fyrir leiknum enda í fyrsta sinn sem liðið leikur til úrslita.

Jóhann segir að undirbúningur liðsins hafi gengið vel. „Æfingarnar hafa verið ferskar og menn eru tilbúnir," sagði Jóhann en hann hefur ekki stórar áhyggjur af slæmu gengi Stjörnunnar að undanförnu í Pepsi-deild karla.

„Ég held að það muni bara þjappa okkur enn betur saman fyrir leikinn. Við ýtum fortíðinni til hliðar og hugum að framtíðinni. Stemningin í Garðabænum er alltaf að magnast og ég held að stuðningsmenn okkar séu jafnvel stressaðri en leikmenn Stjörnunnar," sagði Jóhann m.a. í viðtalinu.

Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og einnig á Vísi, í opinni dagskrá. Upphitun fyrir leik hefst kl. 15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×