Róbert: Við erum að gera eitthvað rétt Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 2. ágúst 2012 23:12 Mynd/Valli
Ísland hefur marga hildi háð gegn Svíum í gegnum árin og lengi vel var talað um Svíagrýluna sem Íslendingum tókst aldrei að vinna bug á. Undanfarin ár hafa þá strákarnir unnið nokkra góða sigra á Svíum en í kvöld vann það fyrsta stórmótssigur okkar gegn Svíum síðan 1964. „Nú?" sagði Róbert hissa þegar blaðamaður sagði honum þetta en Róbert var fljótur að finna skýringuna á því. „Já - af því að þeir hafa ekkert verið með á stórmótum," bætti hann við og brosti. „Nú er þetta kannski að snúast við. Áður fyrr voru þeir með svakalegt lið og eru enn góðir í dag. En við erum bara góðir líka og áttum góðan dag. Við getum þó tapað fyrir Svíum eins og öllum öðrum liðum og þurfum við alltaf að vera á tánum." Hann segir að það sé ýmislegt sem megi læra af leiknum. „Auðvitað er það sem mestu máli skiptir að fá tvö stig. En við gerðum líka mistök sem við munum fara yfir og læra af. Það er alltaf gott að vinna en geta samt bætt sig á einhverjum sviðum." Einn helsti kostur sænska liðsins er sagður vera varnarleikur þess og þá sérstaklega þeir Karlsson og Jernemyr fyrir miðju varnarinnar. Róbert þurfti að klást við þá í dag. „Ég var bara vinnudýr í dag og þeir voru mjög varnarsinnaðir í dag. Það gaf skyttunum okkar meira pláss og við gátum stimplað við á þá. Við skorum allavega mikið af mörkum og þá erum við að gera eitthvað rétt." „Ef þeir vilja vera akkeri á miðjunni en við náum samt að skora - þá hlýtur það að þýða að þeir eru að gera eitthvað vitlaust."
Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira