Handbolti

Róbert: Við erum að gera eitthvað rétt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Valli
Ísland hefur marga hildi háð gegn Svíum í gegnum árin og lengi vel var talað um Svíagrýluna sem Íslendingum tókst aldrei að vinna bug á. Undanfarin ár hafa þá strákarnir unnið nokkra góða sigra á Svíum en í kvöld vann það fyrsta stórmótssigur okkar gegn Svíum síðan 1964.

„Nú?" sagði Róbert hissa þegar blaðamaður sagði honum þetta en Róbert var fljótur að finna skýringuna á því. „Já - af því að þeir hafa ekkert verið með á stórmótum," bætti hann við og brosti.

„Nú er þetta kannski að snúast við. Áður fyrr voru þeir með svakalegt lið og eru enn góðir í dag. En við erum bara góðir líka og áttum góðan dag. Við getum þó tapað fyrir Svíum eins og öllum öðrum liðum og þurfum við alltaf að vera á tánum."

Hann segir að það sé ýmislegt sem megi læra af leiknum. „Auðvitað er það sem mestu máli skiptir að fá tvö stig. En við gerðum líka mistök sem við munum fara yfir og læra af. Það er alltaf gott að vinna en geta samt bætt sig á einhverjum sviðum."

Einn helsti kostur sænska liðsins er sagður vera varnarleikur þess og þá sérstaklega þeir Karlsson og Jernemyr fyrir miðju varnarinnar. Róbert þurfti að klást við þá í dag. „Ég var bara vinnudýr í dag og þeir voru mjög varnarsinnaðir í dag. Það gaf skyttunum okkar meira pláss og við gátum stimplað við á þá. Við skorum allavega mikið af mörkum og þá erum við að gera eitthvað rétt."

„Ef þeir vilja vera akkeri á miðjunni en við náum samt að skora - þá hlýtur það að þýða að þeir eru að gera eitthvað vitlaust."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×