Arnór: Skemmtilegra en á æfingu Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 6. ágúst 2012 17:51 Mynd/Valli
Arnór Atlason segir að leikurinn gegn Bretum í dag hafi ekki verið mjög þýðingarmikill. Aðalatriðið hafi verið að fá þessi tvö stig sem í boði voru. „Við fengum tvö stig og það er það sem mestu skiptir. Við ætluðum að nota þennan leik eins og góða æfingu og það var allavega skemmtilegra að gera það en að hlaupa fram og til baka í einhverri höll úti í bæ," sagði Arnór. Stemningin í Koparboxinu í kvöld var mögnuð en nú verður handboltakeppnin færð yfir í körfuboltahöllina. Strákarnir hafa þó notið sín vel í Koparboxinu enda unnið alla sína leiki þar. „Það er búið að vera æðislegt að spila hérna og fullt á hverjum einasta leik. Það er því leiðinlegt að fara en það verður vonandi þá bara enn skemmtilegra á hinum staðnum og enn fleiri áhorfendur." „Nú kemur leikur í átta liða úrslitum og höfum við beðið eftir því í allt sumar. Við erum tilbúnir og hlökkum mikið til." Nú er ljóst að Ísland mætir Ungverjalandi í fjórðungsúrslitum. „Það er komið andlit á andstæðinginn í þessum leik sem við höfum verið að hugsa svo lengi um. Við þekkjum Ungverjana ágætlega og þurfum nú að nýta tímann fram að leiknum vel til að greina þeirra leik. Ég er viss um að sú vinna byrji strax í kvöld." Arnór segir að lexían eftir þennan leik í kvöld sé einföld. „Ef við erum ekki á fullu þá getum við ekkert í handbolta. Þannig hefur það alltaf verið hjá íslenska landsliðinu. Það sýndi sig aftur í dag." „En við unnum með nokkrum mörkum í kvöld og fengum aðeins að skjóta á þá. Þetta var því bara fínt."
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Sjá meira