Viðskipti innlent

Gengi Össurar hækkar skarplega

Magnús Halldórsson skrifar
Gengi bréfa Össurar hefur hækkað skarplega í dag, um 2,54 prósent, og er gengið félagsins í Kauphöll Íslands nú 202. Lítil hreyfing hefur annars verið á gengi félaga á markaði. Gengi bréf í fasteignafélaginu Regin hefur hækkað um 0,36 prósent og er nú 8,4. Gengi bréf Icelandair hefur lækkað um 0,59 prósent og er nú 6,74.

Heildarvelta í viðskiptum á hlutabréfamarkaðnum í dag er um 130 milljónir króna.

Sjá má frekari upplýsingar um íslenska markaðinn hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×