Íslenski boltinn

Joe Tillen til Vals

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Heimasíða Vals
Enski kantmaðurinn Joe Tillen er genginn í raðir Valsmanna frá Selfossi. Tillen skrifaði undir tveggja ára samning við Val.

Tillen, sem er 25 ára, gekk til liðs við Fram árið 2008. Hann lék með Safamýrarliðinu þar til á vormánuðum 2011 þegar hann samdi við Selfoss.

Hann var lykilmaður í liðinu sem tryggði sér sæti í efstu deild síðastliðið sumar. Tækifæri hans í sumar hafa hins vegar verið af skornum skammti.

Joe er bróðir Sam Tillen, leikmanns Fram. Þeir bræður voru báðir í unglingaliði Chelsea á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×