Innlent

Tjöld og tjaldvagnar gætu fokið

Veðurstofan varar fólk við að tjöld, hjólhýsi og aftanívagnar geti fokið út í veður og vind suðvestanlands og á vestanverðu hálendinu annað kvöld, í slagveðurs rigningu.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að síðdegis á morgun sé búist við hvassri suðaustan- og austanátt sunnan og vestantil á landinu með rigningu og að meðalvindhraði verði á bilinu 13 til 20 metrar á sekúndu. Hviður geti hinsvegar farið upp í 30 metra á sekúndu sumstaðar, en það jafngildir stormi eða roki.

Hvassast verður suðvestanlands þar sem vindur getur farið upp í allt að 40 metra á sekúndu í hvíðum, eða yfir tólf vindstig, sem samkvæmt eldra viðmiði kallaðist rok eða jafnvel fárviðri.  Ámóta vindhraði mælist stundum í verstu vetrarveðrum, en þá er fólk ekki á faraldsfæti með tjöld, afatnívagna eða á húsbílum. Veðurstofan vekur einnig athygli á að stórstreymi er á laugardagskvöld þannig að sjávarhæð getur víða orðið mikil.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×