Íslenski boltinn

Nýi Daninn hjá Blikum stöðvaði sigurgöngu Eyjamanna í fyrsta leik - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Ernir
Nichlas Rohde, nýr leikmaður Breiðabliks, var hetja liðsins í sínum fyrsta leik í dag þegar hann skoraði eina markið í 1-0 sigri á ÍBV. Eyjamenn voru búnir að vinna sex deildarleiki í röð fyrir leikinn.

Rohde átti mjög góðan leik og skoraði sigurmarkið sitt á 35. mínútu leiksins. Þetta var langþráður sigur hjá Blikum sem voru ekki búnir að fagna sigri í fjórum síðustu deildarleikjum sínum eða frá því að þeir unnu Íslandsmeistara KR 20. júní.

Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leik Breiðabliks og ÍBV á Kópavogsvellinum í dag og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×