Boðið upp á rútuferðir yfir Krossá 13. júlí 2012 10:57 Krossá.
Laugavegsmaraþonið verður haldið í sextánda sinn laugardaginn 14. júlí og af því tilefni munu staðarhaldarar í Húsadal ásamt Ársæli Haukssyni bifreiðastjóra hjá South Coast Adventure bjóða upp á aukaferðir yfir Krossá frá kl. 12 á hádegi og fram eftir degi. Ferðirnar eru viðbót við áætlun Kynnisferða sem fer þrjár ferðir yfir Krossá á dag. Ferðir yfir Krossá eru varasamar og er þetta gert til að tryggja öryggi þeirra sem koma í Húsadal til að fylgjast með og taka á móti þátttakendum í Laugavegsmaraþoninu. Ferðin kostar kr. 1.000 á mann aðra leið. Jeppafært er að Krossá um hálendisveg nr. F249 og hægt að leggja bílum við bakka Krossár þaðan sem boðið er upp á ferðir. Þeir sem ekki eru á jeppum geta tekið rútu Kynnisferða frá BSÍ kl 8:00 eða Seljalandsfossi kl 10:50. Ekki er þörf á því að panta miða. Nokkuð hefur verið um að vegfarendur hafi fest bíla sína í Krossá í sumar og þó engin slys hafa orðið á fólki. Tjón á bifreiðum og farangri getur hlaupið á hundruðum þúsunda króna og mikil hætta getur skapast þegar bílar festast í ánni. Staðarhaldarar í Húsadal beina því tilmælum til þeirra sem leið eiga í Húsadal í Þórsmörk um helgina sem aðra daga að nýta áætlunarferðir og aðstoð við að komast yfir Krossá. Laugavegsmaraþonið er haldið í sextánda sinn þar sem hlaupin er 55 kílómetra leið yfir Laugaveginn á milli Landmannalauga og Húsadals í Þórsmörk. Um 350 íslenskir og erlendir hlauparar eru skráðir til þátttöku í ár og búast má við spennandi keppni. Metið í karlaflokki á Þorbergur Ingi Jónsson sem hljóp þessa leið á tímanum 4:20:32 árið 2009 en í kvennaflokki á Helen Ólafsdóttir metið og hljóp á tímanum 5:21:12 árið 2010. Á hverju ári ganga þúsundir ferðamanna yfir Laugaveginn en flestir fara þessa leið á þremur til fimm dögum.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira