Íslenski boltinn

Gary Martin: Þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um

Gary Martin.
Gary Martin. Guðmundur Bjarki Halldórsson
Allt stefnir í að Gary Martin, enski framherji úrvalsdeildarliðs ÍA verði orðinn leikmaður KR áður en langt um líður. Forráðamenn KR hafa lagt fram formlegt tilboð í leikmanninn sem Skagamenn fara nú yfir. Líklegt þykir að samkomulag um kaupin náist, hugsanlega strax á morgun.

Sjálfur talar leikmaðurinn eins og hann sé á förum frá Akranesi.

"Það er erfitt að kveðja ÍA. Ég hef átt góðan tíma með félaginu, stuðningsmenn liðsins hafa verið frábærir en svona er fótboltinn. Menn fara á milli liða, þannig er það bara", sagði Gary Martin í viðtali við Hjört Hjartarson í Boltanum á X-inu í morgun.

Gary hefur ekki farið leynt með að honum líði illa á Akranesi. Þar leiðist honum skelfilega enda sé þar lítið um að vera.

"Félagið hefur reynst mér vel, það er lífið utan vallar sem hefur ekki gengið sem skyldi. Ég er búinn að vera á Íslandi síðan í janúar, samfleytt. Ég fer í ræktina klukkan 10 á morgnana, síðan á sama kaffihúsið 4-5 sinnum og svo á æfingu hálfsex. Þetta er sama rútínan dag eftir dag, viku eftir viku.

"Gary fékk fyrst að vita af áhuga KR á sunnudaginn. Hann segir það hafa verið auðvelda ákvörðun að hefja samningaviðræður við Íslandsmeistarana.

"Doddi [Þórður Guðjónsson, framkvæmdarstjóri ÍA] sagði mér að KR hefði lagt fram kauptilboð í mig og spurði mig um leið hvort ég hefði áhuga á að ganga í þeirra raðir. Ég sagði umsvifalaust já, ég þurfit ekki einu sinni að hugsa mig um. Að mínu mati er KR með besta lið landsins og þar vil ég spila."

Gary Martin hefur ekki rætt við forráðamenn KR, fyrst þurfa félögin að komast að samkomulagi um kaupverð.

Gary kom til ÍA á miðju tímabili, 2010. Hann lék 9 leiki með liðinu í 1.deildinni það ár og skoraði 10 mörk. Hann átti stóran þátt í að ÍA tryggði sér sigur í 1.deildinni en þá skoraði hann 9 mörk í 16 leikjum auk þess að leggja upp fjölmörg mörk fyrir félaga sína. Gary hefur ekki verið eins iðinn við kolann í sumar en hann er búinn að skora þrjú mörk í fyrstu 11 leikjum tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×