Gummi Torfa: Vísar umræðu um eftirmenn Þorvalds á bug Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. júlí 2012 19:31 Mynd / Ernir
Guðmundur Torfason, stjórnarmaður hjá Fram, vísar á bug vangaveltum um mögulega eftirmenn Þorvalds Örlygssonar, þjálfara meistaraflokks Fram. Þorvaldur sé þjálfari liðsins. Hjörvar Hafliðason, sérfræðingur í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport, birti nöfn knattspyrnuþjálfara sem mögulega gætu tekið við þjálfarastarfinu hjá Fram færi svo að Þorvaldur yrði látinn taka poka sinn. Framarar hafa tapað átta af ellefu leikjum sínum í Pepsi-deild karla í sumar og sitja í þriðja neðsta sæti deildarinnar. Vangaveltur hafa verið uppi hvort Þorvaldur njóti enn trausts Framara en Guðmundur Torfason neitaði að svara þeirri spurningu. „Þorvaldur er þjálfari liðsins og ég skil ekki þessa umfjöllun. Við erum að vinna í því að finna lausnir á okkar málum og ég átta mig ekki á því hvað mönnum gengur til. Ég vísa þessu öllu á bug," sagði Guðmundur í samtali við Vísi í dag. Guðmundur, sem þjálfaði lið Fram á árum áður auk þess að spila sem atvinnumaður erlendis og með íslenska landsliðinu, vildi sem minnst ræða málið. „Maður þekkir það úr þessum fótbolta að það eru alls konar sögusagnir úr hinum og þessum áttum. Við kippum okkur ekkert upp við þetta," segir Guðmundur. Ríkharður Daðason, fyrrum leikmaður Fram og landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu, hefur verið nefndur sem mögulegur arftaki en hann kom af fjöllum í samtali við íþróttadeild í dag. „Ég veit ekki neitt. Hef ekki heyrt neitt og reikna með því að þetta sé bara tóm vitleysa. Það síðasta sem ég heyrði var að Þorvaldur nyti fulls trausts stjórnarinnar. Ég reikna með því að það sé svoleiðis áfram," sagði Ríkharður. Hann staðfesti ennfremur að hann hefði ekkert menntað sig í knattspyrnuþjálfarafræðum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Golf Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Fótbolti Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Fleiri fréttir Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Stjarnan - Breiðablik 4-4 | Átta marka tryllir í Garðabænum Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Uppgjörið: 1-0 ÍA - Valur | Viktor skoraði markið sem færði Skaganum þrjú stig „Hvernig sem úrslitin lenda þá skilgreinir það ekki sumarið“ Svona verður útsending Sýnar Sport í kringum stórleiki kvöldsins Sjáðu Fram sækja sigur í sjö marka leik gegn KA Gylfi gerði nýjan samning við Víking „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Ætlar ekki að leggjast niður fyrir Víkinga og fara að grenja Uppgjörið: KA - Fram 3-4 | Mörkunum rigndi á Akureyri í sigri Fram Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Mark dæmt af KA eftir að Framari braut á Framara Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Fóru yfir helstu vonbrigðin á tímabilinu Yfirlýsing Fylkis: Biðjast afsökunar og lofa að taka hart á málinu Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ „Smá þolinmæði sem þarf“ „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Sjá meira