Gert ráð fyrir 1500 íbúðum á yfirgefnum iðnaðarlóðum Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 9. júlí 2012 19:30
Borgin gerir ráð fyrir hátt í fimmtánhundruð íbúðum á yfirgefnum iðnaðarlóðum í nýju aðalskipulagi sem nú er á lokametrunum. Varaformaður skipulagsráðs segir ekki bara hægt að bjóða upp á einbýlishúsalóðir fyrir efnaða íbúa. Vinna við aðalskipulag Reykjavíkurborgar er nú langt komin en eitt aðal verkefni skipulagsráðs borgarinnar hefur verið að koma fyrir tuttugu og fimm þúsund nýjum Reykvíkingum sem mannfjöldaspár gera ráð fyrir á næstu átján árum. Það á að gera með því að reisa hátt í fjórtán þúsund og fimm hundruð nýjar íbúðir en þeim á að koma fyrir að mestu vestan elliðaáa með því að þétta byggð. "Ég hef sagt að Reykjavík á nú þegar mikið af fínum og flottum úthverfum með mjög stórum íbúðum og einbýlishúsum og nú er komið að innhverfunum og hér í kringum okkur er nóg af tækifærum á gömlum aflögðum iðnaðarlóðum að byggja þétt, gefa fleiri kost á að búa í íbúðum miðsvæðis í borginni," segir Hjálmar Sveinsson, varaformaður skipulagsráðs. Ein af þessum yfirgefnu lóðum er við Héðinshúsið í Vesturbænum en aðrar lóðir eru til dæmis Lýsisreiturinn, Bykoreiturinn og Mýrargötureitur við Slippinn. "Bara á þessu litla svæði, geta risið um þúsund, jafnvel allt að tólf til fimmtán hundruð íbúðir," segir Hjálmar. Í heildina er gert ráð fyrir tvö þúsund íbúðum í miðborginni, hátt í sjö þúsund í vatnsmýrinni þar sem flugvöllurinn er í dag og síðan rúmlega þrjú þúsund við Elliðárvog. Þá eru framkvæmdir að hefjast 250 íbúðir við Einholt Þverholt og byrjað að reisa 280 stúdentaíbúðir í vatnsmýrinni við Aragötu. Hjálmar segir að mikil eftirspurn sé eftir litlum íbúðum miðsvæðis á meðan offramboð er af stórum íbúðum í úthverfum. "Þannig að fólk sem á ekki alltof mikla peninga, við getum ekki vísað því á einbýlishúsalóðir í úthverfunum en við þurfum að byrja hér inni í borginni og við erum í raun byrjuð," segir Hjálmar.
Mest lesið Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Blámóðan þyngdi róður slökkviliðsmanna Innlent Gosmóðan heldur áfram Innlent Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Innlent Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Innlent Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Erlent Fleiri fréttir Blámóðan þyngdi róður slökkviliðsmanna Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Kjósendur stjórnarflokkanna „bitrir“ og í basli með sjálfsmyndina Búast við gosmóðu fyrir norðan og vestan næstu daga Sinnaskipti lögreglustjórans og Þorgerður ræðir væntanlegan varnarsamning við ESB Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Sjá meira