Hundrað ár liðin frá fyrsta leik í Íslandsmótinu í fótbolta 28. júní 2012 13:15 Mynd/Heimasíða KSÍ
Í dag, 28. júní, eru liðin nákvæmlega 100 ár frá fyrsta leiknum sem fram fór í Íslandsmóti í knattspyrnu. Þennan dag árið 1912 mættust Fram og KR, sem þá hét reyndar Fótboltafélag Reykjavíkur, í kappleik á Melavellinum. Úrslit leiksins urðu jafntefli, 1-1, og var það Framarinn Pétur J. Hoffmann Magnússon sem skoraði fyrsta markið. Þetta kemur fram á KSÍ.is. Dómari leiksins var Ólafur Rósenkranz leikfimikennari á sjötugsaldri, og fékk hann fína umsögn fyrir frammistöðuna. Í Ísafold var ritað: "Dómarinn verður að hlaupa fullt eins mikið, ef eigi meira en þeir sem í leiknum eru. Var Ólafur þarna lifandi sönnun þess, hvað leikfimin fær áorkað um að halda manninum fráum og fimum fram í elliár. Því eigi gaf Ólafur þeim eftir unglingunum í leiknum um hlaup." Og í lok umfjöllunar um dómarann spyr sá sem ritar (Ego): "Mundi það raunar einsdæmi um allan heim, að maður á sjötugsaldri sé fær um að vera leikdómari í kappknattspyrnu?" Framarar, sem höfðu á að skipa nokkru yngri leikmönnum en KR-ingar, voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu með marki fyrrgreinds Péturs Hoffmans. En í síðari hálfleik voru það liðsmenn KR sem sóttu harðar að marki og uppskáru fljótlega mark. Þar var að verki Ludvig Arne Einarsson. Hvorugu liði tókst þó að bæta við marki, og í niðurlagi umfjölunar Ísafoldar um leikinn segir meðal annars: "En sú ánægja veittist hvorugum flokknum. Þeir sveittust við báðir, þutu með knöttinn af allri orku, sóttu í mörkin af heljarákafa. En allt kom fyrir ekki. Félögin sátu með sinn vinninginn hvort. Það er nú komin allmikil mynd á knattspyrnuna, svo að ómenguð ánægja er að horfa á með köflum."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira