Gylfi Orra: Dómarar vilja ekki að menn taki út refsingu fyrir þeirra mistök 28. júní 2012 17:00 Gylfi Þór Orrason Mynd/GVA „
Gagnrýnin á störf dómara hefur ekki verið neitt öðruvísien undanfarin ár. Mér finnst sem betur hafa verið minna um hana en undanfarin ár sem ég tel vera merki um að dómarahópurinn hafi staðið sig mjög vel í sumar", sagði Gylfi Orrason, varaformaður KSÍ og formaður dómaranefndar sambandsins í viðtali við Hjört Hjartarson í Boltanum á X-inu í morgun. Ákveðnir dómarar hafa undanfarið fengið sinn skerf af gagnrýni, nú síðast Þóroddur Hjaltalín en frammistaða hans í bikarleik KR og Breiðabliks á dögunum þótti léleg að margra mati. Sérstaklega var horft til rauða spjaldsins sem markvörður Blika, Ingvar Kale fékk en myndbandsupptökur benda sterklega til að um rangan dóm hafi verið að ræða. Svipað var uppi á teningnum í leik Þórs og ÍR í fyrstu deildinni á dögunum en þar var Jóhanni Helga Hannessyni, leikmanni Þórs, vísað af leikvelli með rautt spjald. Þar sýndi myndbandsupptaka svo ekki var um villst að spjaldið sem Jóhann fékk var fyrir litlar sakir. Samkvæmt regluverki KSÍ er aganefnd sambandsins ekki heimilt að styðjast við myndbandsupptökur þegar nefndin úrskurðar í málum sem koma inn á borð til hennar. „Einungis ef upp koma mál þar sem t.d. gult eða rautt spjald hefur verið skráð á rangan leikmann í skýrslu dómara er nefndinni heimilt að notast við myndbandsupptökur til að leiða hið rétta í ljós", sagði Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ í samtali við Vísi og bætti við; „Ákvörðun dómara inni á vellinum stendur hinsvegar óhögguð, sama hversu umdeilanleg sú ákvörðun kann að vera. Þangað til að myndavélar verða á öllum leikjum í öllum keppnum á vegum KSÍ á ég erfitt með að sjá að þessum reglum verði breytt." Gylfi vill hinsvegar opna fyrir þennan möguleika hjá aganefndinni, burtséð frá því hvort allir leikir eru teknir upp eða ekki. „Ef myndbandsupptökur sýna, svo ekki verður um deilt að dómara hafði orðið á mistök og þá sérstaklega þegar um er að ræða að leikmanni sé vísað ranglega af leikvelli þá ætti að vera hægt að klippa aftan af þessari viðbótarefsingu sem þessi saklausi maður á yfir höfði sér," sagði Gylfi. „Þetta kemur hinsvegar dómurum og knattspyrnulögunum ekki við. Dómarar yrðu eflaust manna fegnastir ef leið yrði fundin til að koma þessu svona við. Þeir vilja ekki að mönnum sé refsað óeðlilega fyrir einhver mistök sem þeir bera ábyrgð á", sagði Gylfi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira