Íslenski boltinn

KA og Víkingur gerðu jafntefli á Akureyri

Egill skoraði fyrir Víking í kvöld.
Egill skoraði fyrir Víking í kvöld.
David Disztl tryggði KA jafntefli gegn Víkingi í kvöld er liðin mættust fyrir norðan. Lokatölur í leik liðanna 1-1.

Egill Atlason kom Víkingi yfir á 36. mínútu en Disztl jafnaði leikinn fjórtan mínútum fyrir leikslok.

Víkingur komst upp í annað sætið með stiginu með fimm stig en KA er skammt undan með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×