Grindavík fær sænskan varnarmann að láni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. maí 2012 18:17 Guðjón Þórðarson er þjálfari Grindavíkur. Mynd/Anton
Grindavík hefur styrkt leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í Pepsi-deild karla með sænskum varnarmanni. Sá heitir Mikael Eklund og getur bæði spilað sem miðvörður og bakvörður. Hann kemur til Grindavíkur sem lánsmaður frá sænska B-deildarliðinu Braga og mun snúa aftur þangað þann 31. ágúst. Hann er þegar kominn með leikheimild hér á landi og gæti því spilað með Grindavík gegn Fram í Laugardalnum á morgun. Eklund er á 31. aldursári og hefur spilað í heimalandinu allan sinn feril, lengst af með IK Brage og Kalmar. Hann varð sænskur meistari með Kalmar árið 2008. Fram kemur á heimasíðu Braga að hann hafi átt við þrálát meiðsli að stríða síðustu ár. Hann náði til að mynda að spila aðeins einn leik með Assyriska áður en hann sleit krossband í hné. Það var árið 2010. Hann sneri svo aftur á völlinn með Braga í sænsku B-deildinni á síðustu leiktíð og kom þá við sögu í fimmtán deildarleikjum. Hann hefur komið við sögu í þremur leikjum á þessari leiktíð. „Mikael hefur tekist að koma sér aftur af stað eftir sín meiðsli og vill fá að spila meira. Við getum ekki lofað því hér og því var ákveðið að fara frekar þessa leið," sagði Lars Håkman, yfirmaður íþróttamála hjá Braga, í viðtali á heimasíðu félagsins. „Okkur finnst jákvætt að Mikael fái að spila marga leiki á Íslandi og komi svo aftur til okkar í góðu formi fyrir lokasprettinn í deildinni."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Íslenski boltinn EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Enski boltinn Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Körfubolti Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Handbolti Fleiri fréttir Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Sjá meira