Vill innheimta peninga sem Kópavogsbær varð af vegna sérkjara 2. maí 2012 12:48 Ómar Stefánsson er bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi.
Guðrún Pálsdóttir, sem lét af embætti bæjarstjóra í Kópavogi í febrúar, fékk í tíð sinni sem fjármálastjóri hjá bæjarfélaginu hagstæðari vaxtarkjör en aðrir vegna einbýlishúsalóðar auk þess sem hún fékk vaxtalaus lán fyrir gatnagerðargjöldum. Sérkjör fyrrverandi bæjarstjóra er meðal þess sem varð til þess að Samfylkingarfólk vildi ekki lengur styðja hana í embætti bæjarstjóra að sögn Guðríðar Arnardóttur, formanns Samfylkingarinnar. Ómar Stefánsson, formaður Framsóknarflokksins í Kópavogi vill að reynt verði að innheimta það fé sem bærinn varð af vegna sérkjaranna. Málið komst upp þegar enduskoðunarfyrirtækið Deloitte var í fyrrasumar fengið til að gera athugun á innihaldi peningaskáps á bæjarskrifstofunum í Kópavogi. Fréttablaðið greinir frá málinu í dag en þar segir Guðrún að hafi engar skýringar á því að hún greiddi lægri vexti af skuldabréfum en aðrir. Hún telji að um mannleg mistök hafi verið að ræða en fimmtán ár eru síðan skrifað var undir bréfin. Guðríður Arnardóttir er formaður Samfylkingarinnar í Kópavogs segir þetta meðal þeirra ástæðna sem lágu að baki þeirri ákvörðun að víkja Guðrúnu úr embætti bæjarstjóra í febrúar. Hún vill láta kanna betur hvort fleiri hafi notið slíkra sérkjara hjá bænum. Guðríður væntir þess að nýr meirhluti fylgi málinu eftir en meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokksins réðu Guðrúnu í sviðstjórastöðu sem hún tekur við í haust. Ómar Stefánsson formaður Framsóknarflokksins í Kópavogi átelur Samfylkinguna fyrir að hafa ekki kannað hvort hægt væri að innheimta féð þegar málið kom upp. "Ég ætla að kynna mér þetta mál töluvert betur og sjá hvort þetta sé afskrifað og hvort hægt sé að innheimta þetta. Það er ótækt að þetta sé svona," segir hann. "Við verðum að gæta jafnræðis meðal íbúa í Kópavogi." Ómar segist vilja kanna hvort Guðrún hafi sjálf gengið frá samningum áður en hann leggur mat á hvort skýringar hennar um að mannleg mistök hafi átt sér stað séu líklegar. Hann vill ekki svara því hvort hann styðji Guðrúnu í embætti sviðstjóra hjá bænum fyrr en hann hefur farið betur yfir málið.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira