Rúmlega helmingur 18 ára nema með of hátt hlutfall líkamsfitu 3. maí 2012 10:46 Myndin er úr safni.
Rúmlega helmingur átján ára nema greindust með of hátt hlutfall líkamsfitu samkvæmt niðurstöðum um holdafar, úthald, hreyfingu og efnaskiptasnið meðal 18 ára íslenskra framhaldsskólanema en niðurstöðurnar voru birtar í nýjasta hefti Læknablaðsins. Markmið rannsóknarinnar var að kanna áhættuþætti efnaskiptasjúkdóma meðal 18 ára einstaklinga. Og niðurstöðurnar eru nokkuð sláandi. Þátttakendur voru 18 ára (eða á 18. ári) framhaldsskólanemendur úr þremur skólum í Reykjavík, skóla eitt (bóknámsskóla með áfangakerfi), skóla tvö (bóknámsskóla með bekkjakerfi) og skóla þrjú (verknámsskóla). Úrtakið var valið af handahófi af nemendalistum skólanna og alls var 426 nemendum boðin þátttaka en 295 (69,3%) þáðu boðið (143 stúlkur og 152 strákar). Af þeim hættu 18 þátttöku. Í holdafars- og blóðþrýstingsmælingunum tóku 275 nemendur þátt, 252 undirgengust mælingu á líkamssamsetningu, 251 leyfði blóðsýnatöku, 243 tóku þátt í úthaldsprófinu og hreyfing var mæld hjá 212 þátttakendum. Nðurstöðurnar voru að samkvæmt BMI-stuðli voru 23% nemenda of þungir eða feitir, 20% höfðu of mikið mittismál og 51% greindust með of hátt hlutfall líkamsfitu. Einnig mældust 11% nemenda með óæskilega lág háþéttni-fituprótein. Hvað úthald varðar, flokkuðust aðeins 16% nemenda með slakt eða mjög slakt úthald og þar af voru stúlkur í miklum meirihluta. Þrátt fyrir að stúlkurnar hefðu að meðaltali gott úthald og strákarnir mjög gott úthald náðu nemendur að jafnaði ekki að hreyfa sig daglega eins og mælt er með í hreyfiráðleggingum. Úthald 18 ára framhaldsskólanema virðist því að jafnaði gott en hreyfingu þeirra er verulega ábótavant og hlutfall líkamsfitu of hátt. Einnig fannst hækkaður slagþrýstingur og blóðfitur hjá um 10% unglinganna. Athygli vekur að líkamsástand er verra hjá verknáms- en bóknámsnemum. Hægt er að lesa rannsóknina á vef Læknablaðsins.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira