Benni B-Ruff heldur upp á 15 ára starfsafmæli 29. apríl 2012 22:00 Benni B-Ruff byrjaði að spila af alvöru 14 ára gamall. Nú fimmtán árum síðar er hann enn að og spilar reglulega á mörgum helstu börum bæjarins og jafnvel í New York. „
Ég held þessu áfram þar til börnin mín fara að heimsækja mig á skemmtistaðina, þá er þetta komið gott," segir Benedikt Freyr Jónsson, eða DJ Benni B-Ruff, sem fagnar 15 ára ferli sínum sem plötusnúður um þessar mundir. Þegar Benni var 14 ára byrjaði hann með útvarpsþátt ásamt félaga sínum, Didda Fel. Í eitt skiptið fengu þeir í heimsókn til sín Robba Kronik sem bauð þeim í kjölfarið að koma í heimsókn í þáttinn sinn, Kronik. „Ég fékk að taka syrpu í þættinum hjá Robba og þaðan var ekki aftur snúið," segir Benni. Hann segir bransann hafa breyst mikið á þessum 15 árum. „Það er svo hröð þróun í tækninni og það sem byrjaði bara í vynilnum er nú komið í mun fjölbreyttari hluti líka," segir hann. Benni er nýkominn heim frá New York þar sem hann þeytti skífum á klúbbnum Hotel Chantelle í Lower East side. „Það er samt ekki hótel heldur er víst voða hip og kúl að kalla allt hótel nú til dags," segir Benni og hlær. Tónlistin hans virðist hafa falla vel í kramið úti, því hann hefur þegar fengið boð um að koma aftur út að spila fljótlega. Í tilefni starfsafmælisins mun Benni slá upp partýi á skemmtistaðnum Faktorý þann 9.júní næstkomandi. Ásamt honum munu margir af helstu plötusnúðum skemmtistaðarins Tetriz spila þar. „Tetriz var aðal staðurinn þegar ég var að byrja í bransanum og margir sem tóku sín fyrstu skref þar," segir Benni að lokum. -trs
Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Lífið samstarf Fleiri fréttir Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Sjá meira