NBA í nótt: Níundi sigur Miami í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. mars 2012 09:00 LeBron James og Dwyane Wade í leiknum í nótt. Mynd/AP
Þeir LeBron James og Dwayne Wade skoruðu samanlagt 71 stig fyrir Miami Heat sem vann Portland, 107-93, í nótt og þar með sinn níunda sigur í röð í NBA-deildinni. James var með 38 stig og ellefu fráköst en Wade með 33 stig og tíu stoðsendingar. Liðið hefur unnið 28 af fyrstu 35 leikjum sínum á tímabilinu sem er besta byrjunin í sögu félagsins. Þetta var fyrsti leikur Miami eftir stjörnuhelgina en Chris Bosh missti reyndar af leiknum vegan fráfalls í fjölskyldu hans. Stigahæstur hjá Portland var LaMarcus Aldridge með 20 stig. Kevin Durant skoraði 38 stig fyrir Oklahoma City sem átti magnaða endurkomu gegn Orlando og vann, 105-102. Oklahoma City var átján stigum undir í upphafi fjórða leikhluta en náði að sigla fram úr og tryggja sér sigur. Russell Westbrook skoraði 29 stig fyrir Oklahoma city og tók tíu fráköst þar að auki. Þetta var sjöundi sigur liðsins í röð. Tveir aðrir leikir fóru fram í deildinni í nótt. Phoenix vann Minnesota, 104-95, þar sem Grant Hill skoraði 20 stig, þar af fimmtán í seinni hálfleik. Þá hafði LA Clippers betur gegn Sacramento, 108-100. Chris Paul var með 22 stig og níu stoðsendingar og Blake Griffin fjórtán stig og níu fráköst.
Mest lesið Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Handbolti Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Handbolti Segja Hákon Arnar undir smásjá stórliðs Fótbolti Aldrei séð föður sinn jafn glaðan og sáttan í einu og sama verkefninu Íslenski boltinn Farnar á EM í Sviss en koma fyrst við í Serbíu Fótbolti Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin úr Bestu þar sem Gylfi Þór fór mikinn og glæsimark var skorað Íslenski boltinn Leik á Ítalíu aflýst vegna óeirða Fótbolti OKC Thunder NBA-meistari Sport Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Álftnesingar krækja í lykilmann Keflavíkur ÍR-ingar næla sér í leikmann úr Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar Hætta í miðju úrslitaeinvígi og enginn meistari krýndur Dóttirin talar íslensku: Í úrslitum NBA og meira tengd Íslandi en áður Þrumuleikur frá Jalen Williams og Thunder einum sigri frá titlinum Semja við íslenska kjarnann í liði Íslandsmeistaranna Ótrúleg endurkoma og allt jafnt í úrslitaeinvíginu Hin stórstjarna Celtics þurfti einnig að fara undir hnífinn Áhorfið minnkaði um 55 prósent eftir að Caitlin Clark meiddist Sjá meira