Brynjar Björn spilar með KR í sumar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. febrúar 2012 09:09 Brynjar Björn í kapphlaupi við Carlos Tevez í bikarleik gegn Manchester City. Nordic Photos / Getty Images
Brynjar Björn Gunnarsson, atvinnumaður í knattspyrnu hjá Reading í Englandi, hefur ákveðið að leika með Íslands- og bikarmeisturum KR í sumar. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í morgun. Samningur Brynjars Björns við Reading rennur út í vor. Brynjar Björn er uppalinn í Vesturbænum og lék með KR áður en hann hélt í atvinnumennsku. „Staðan er þannig að ég mun kveðja Reading í vor og flytja heim. Það þarf eitthvað dramatískt að gerast svo það breytist. Ég held að ég geti skilið við þennan kafla bara mjög sáttur," segir Brynjar í viðtali við Morgunblaðið. Brynjar sem verður 37 ára á árinu hélt í atvinnumennsku árið 1997. Eftir tvö ár á Norðurlöndum þar sem hann lék með Vålerenga og Örgryte hélt hann til Englands þar sem hann hefur leikið síðan. Fyrst var hann hluti af Íslendingaliði Stoke áður en Nottingham Forest og Watford nutu krafta kappans. Frá árinu 2005 hefur hann leikið með Reading. Rúnari Kristinssyni, þjálfara KR, verður töluverður vandi á höndum þegar kemur að því að velja í liðið næsta sumar. Bjarni Guðjónsson, Baldur Sigurðsson, Viktor Bjarki Arnarsson og Egill Jónsson hafa barist um sæti í liðinu undanfarin ár. Þá gekk Akureyringurinn Atli Sigurjónsson nýverið til liðs við félagið. Ljóst er að Brynjar Björn mun styrkja KR-liðið mikið en kappinn hefur verið atvinnumaður frá árinu 1998 og á að baki 74 A-landsleiki.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Alfreð mætti með sína menn klára í leik upp á líf eða dauða Handbolti „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Enski boltinn Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga Enski boltinn „Það trompast allt þarna“ Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Fleiri fréttir Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Alfreð hættur hjá Breiðabliki Skipulagsbreytingar á skrifstofu KSÍ Nýliðarnir fá bandarískan markvörð Sjá meira