Harpa Ólafsdóttir: Þurfum að gæta hagsmuna okkar sjóðsfélaga Magnús Halldórsson skrifar 21. september 2012 12:00 Steinunn Guðbjartsdóttir og Páll Eiríksson, eru í slitastjórn Glitnis.
Harpa Ólafsdóttir, formaður stjórnar Gildis, segir sjóðinn ítrekað hafa óskað eftir því að fá betri sundurliðun á kostnaði hjá slitastjórn Glitnis, en ekki fengið. Það sé óásættanlegt þar sem sjóðsfélagar eigi heimtingu á því að fá þessar upplýsingar nákvæmlega niðurgreindar. Lífeyrissjóðirnir Gildi og lífeyrissjóður Verzlunarmanna hafa ákveðið að leita réttar síns fyrir dómi, og óska eftir sundurliðun á kostnaði við slit Glitnis, og þá einkum þegar kemur að launagreiðslum til þeirra Steinunnar Guðbjartsdóttur og Páls Eiríkssonar, sem sitja í slitastjórn bankans. Frá þessu var greint í Viðskiptablaðinu í gær. Harpa Ólafsdóttir, stjórnarformaður Gildis og framkvæmdastjóri kjarmálasviðs stéttarfélagsins Eflingar, segir að sjóðurinn hafi margítrekað reynt að fá betri upplýsingar, en ekki fengið. „Kveikjan að þessu er óánægja með hvað kostnaðurinn er hár, og einnig að fá ekki þær upplýsingar upp gefnar sem beðið er um. Það liggur í hlutarins eðli að við þurfum að fá upplýsingar um þennan kostnað þar sem við höfum hagsmuna að gæta fyrir okkar sjóðsfélaga sem eiga rétt á því að fá að vita hvernig þessum málum er háttað," segir Harpa. Hún segir stjórn Gildis hafa verið einhuga um að reyna með öllum ráðum að fá ítarlegustu upplýsingar fram, um launakostnaðinn hjá þrotabúi Glitnis, fyrst ekki var hægt að fá hann frá slitastjórninni. Stefnt er að því að ljúka nauðasamningsferli Glitnis, fyrir lok þessa árs, en Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnarinnar, hefur sagt að kröfuhafar stýri ferðinni í þeim efnum, og hvers hratt málin vinnist.
Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Sjá meira