Gervitennur í fermingargjöf Magnús R. Gíslason skrifar 7. nóvember 2012 06:00 Rannsóknir sýna að tennur Íslendinga skemmast nú hraðar en hjá flestum öðrum þjóðum, t.d. skemmast tvisvar sinnum fleiri tennur í 12 ára börnum okkar en hjá hinum Norðurlandaþjóðunum. Flestir vita að aðalorsök tannskemmda er mikil neysla á sykri, einkum í gosdrykkjum og sælgæti, sem okkur hefur gengið erfiðlega að neyta í hófi. Hver Íslendingur borðar nú á ári hverju 70 kg af sykri, 19 kg af sælgæti og drekkur um ½ lítra af gosdrykkjum dag hvern. Áhrifaríkasta og ódýrasta aðgerðin til að minnka tannskemmdir er án efa að breyta matarvenjum okkar og minnka neyslu sætinda. En auk þess er nauðsynlegt að hafa reglubundið eftirlit með tönnum barna og unglinga á hálfs árs eða eins árs fresti eftir þörfum. Sé það gert er síður hætta á að skemmdir myndist og verði stórar. Vonandi fá starfsbræður mínir og -systur ekki sams konar bón og ég í upphafi starfsferils míns um 1960. Þá kom til mín móðir sem bað mig um að smíða gervitennur í dóttur sína því að erfitt væri að láta hana fermast með sínar áberandi skemmdu tennur. Eftir að hafa skoðað ástand tanna stúlkunnar skildi ég mætavel áhyggjur móðurinnar. Við erum auðug þjóð og höfum nægjanlega margt sérþjálfað starfsfólk til að veita vandaða tannlækningaþjónustu. Nauðsynlegt er að börn og unglingar fái fría tannlækningaþjónustu til 18 ára aldurs eins og hjá hinum norrænu ríkjunum. Venjist þau á reglubundið eftirlit verður það þeim eðlilegt og sjálfsagt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Rannsóknir sýna að tennur Íslendinga skemmast nú hraðar en hjá flestum öðrum þjóðum, t.d. skemmast tvisvar sinnum fleiri tennur í 12 ára börnum okkar en hjá hinum Norðurlandaþjóðunum. Flestir vita að aðalorsök tannskemmda er mikil neysla á sykri, einkum í gosdrykkjum og sælgæti, sem okkur hefur gengið erfiðlega að neyta í hófi. Hver Íslendingur borðar nú á ári hverju 70 kg af sykri, 19 kg af sælgæti og drekkur um ½ lítra af gosdrykkjum dag hvern. Áhrifaríkasta og ódýrasta aðgerðin til að minnka tannskemmdir er án efa að breyta matarvenjum okkar og minnka neyslu sætinda. En auk þess er nauðsynlegt að hafa reglubundið eftirlit með tönnum barna og unglinga á hálfs árs eða eins árs fresti eftir þörfum. Sé það gert er síður hætta á að skemmdir myndist og verði stórar. Vonandi fá starfsbræður mínir og -systur ekki sams konar bón og ég í upphafi starfsferils míns um 1960. Þá kom til mín móðir sem bað mig um að smíða gervitennur í dóttur sína því að erfitt væri að láta hana fermast með sínar áberandi skemmdu tennur. Eftir að hafa skoðað ástand tanna stúlkunnar skildi ég mætavel áhyggjur móðurinnar. Við erum auðug þjóð og höfum nægjanlega margt sérþjálfað starfsfólk til að veita vandaða tannlækningaþjónustu. Nauðsynlegt er að börn og unglingar fái fría tannlækningaþjónustu til 18 ára aldurs eins og hjá hinum norrænu ríkjunum. Venjist þau á reglubundið eftirlit verður það þeim eðlilegt og sjálfsagt.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar