Skoðun

Framtíð dætra okkar

Kjartan Örn Sigurðsson skrifar
Ég fæddist á kvennaári Sameinuðu þjóðanna 1975, kynntist Telmu eiginkonu minni 1997 og við eignuðumst elstu stelpuna okkar árið 1999. Í dag eru þær orðnar fjórar.

Það er eitt af hlutverkum foreldra að standa vörð um hagsmuni barna sinna. Fljótlega eftir að við fórum að eignast stelpurnar okkar varð mér ljóst að okkur hafði jafnframt verið gefið annað hlutverk; að berjast fyrir kynjajafnrétti. Síðan áttaði ég mig á því að ekki var um annað hlutverk að ræða heldur er réttindabaráttan fyrir jöfnum tækifærum og launum kvenna hluti af foreldrahlutverkinu.

Ég vil hvetja foreldra til að rækta hlutverk réttindabaráttu í uppeldinu. Stúlkur eiga aldrei að þurfa að sætta sig við önnur skilyrði en strákar þessa lands, og öfugt.

Það skiptir ekki máli hvernig við stöndum okkur í alþjóðlegum samanburði – það er óafsakanlegt og úr takti við samfélagið að enn séu til vinnustaðir í einkageiranum og hjá hinu opinbera þar sem kyn viðkomandi er áhrifavaldur á laun.

Ég er jafnréttissinni og mun fjárfesta ævinni í að berjast fyrir því að dætur okkar fjórar njóti sömu tækifæra og launa og jafnaldrar þeirra af hinu kyninu. Launamisrétti burt. Þessu eru allir sammála.

Það er komið að foreldrum þessa lands að koma launajafnrétti í kring á okkar vinnustöðum og kenna börnunum okkar að sætta sig aldrei við neitt annað. Þannig sköpum við réttláta framtíð.




Skoðun

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×