Til hamingju með daginn Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar 7. nóvember 2012 14:00 Miðvikudaginn 7. nóvember er Félagsmiðstöðvadagurinn haldinn hátíðlegur um allt land. Þá opna félagsmiðstöðvarnar í landinu dyr sínar fyrir fyrir gestum og gangandi, foreldrum og gömlum heimalingum félagsmiðstöðvanna. Félagsmiðstöðvar hafa ekki verið starfandi lengi en fyrsta „tómstundarheimilið" opnaði á Lindargötunni 1. október 1957. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar á þessum 55 árum og eru nú starfræktar félagsmiðstöðvar í flest öllum hverfum og bæjum landsins. Nú er einnig hægt að læra tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands og hefur fagþekking aukist til muna innan veggja félagsmiðstöðva. Félagsmiðstöðvar í dag eru eins konar brú milli grunnskólans og skóla lífsins. Í félagsmiðstöðvunum starfar fagfólk í uppeldisfræðum sem beitir hinum ýmsu verkfærum til að hjálpa unglingunum í sjálfsmyndarleit sinni og má þar nefna leiklist, kvikmyndagerð, íþróttir, ræðumennsku, tónlist, myndlist og þannig mætti lengi telja. Í félagsmiðstöð er enginn námskrá og engin mætingarskylda svo starfið er sveigjanlegt og síbreytilegt eftir þörfum unglinganna. Starfið í félagsmiðstöðvunum byggir á þátttöku ungs fólks og lýðræði. Það eru allir jafnir innan veggja félagsmiðstöðvarinnar og nefndir og ráð á vegum unglinganna sjá um skipulagningu og framkvæmd á starfinu. Þrátt fyrir að vera án námskrár þá eru viss grunn markmið sem allt starfið byggir á. Yfirmarkmið félagsmiðstöðvarinnar er að styrkja sjálfsmynd unglinganna og er það gert með því að vinna með hópa á jákvæðum forsendum til að auka samskiptaþroska og sjálftraust unglinganna. Það er gaman að segja frá því að samkvæmt nýjustu skýrslu Rannsóknar og greiningar mæta 44% af unglingum í 9. og 10. bekk á opin hús á vegum félagsmiðstöðvanna og 74,2% mæta á viðburði á vegum félagsmiðstöðvanna. Þetta háa hlutfall ungs fólks sem mætir af fúsum og frjálsum vilja í þetta opna lýðræðislega uppeldisstarf hljóta að teljast góð tíðindi fyrir íslenskt samfélag. Nú hvet ég þig til að kynna þér hvað félagsmiðstöðin í hverfinu þínu býður upp á í tilefni dagsins, ég hvet þig til að kynna þér það starf sem fram fer í hverfinu þínu og einnig að kynnast starfsfólkinu sem heldur utan um starfið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 18.04.2026 Halldór Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason Skoðun Skoðun Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason skrifar Skoðun Ekki nóg að ráða – við þurfum að rækta Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason skrifar Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson skrifar Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson skrifar Skoðun Vaxtarmörk eða valdsmörk sveitarstjórna Orri Björnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa og leiðin til Siglufjarðar Pétur Heimisson skrifar Skoðun Sterkur skólabær – vinnum þetta saman Jóhannes Már Pétursson skrifar Sjá meira
Miðvikudaginn 7. nóvember er Félagsmiðstöðvadagurinn haldinn hátíðlegur um allt land. Þá opna félagsmiðstöðvarnar í landinu dyr sínar fyrir fyrir gestum og gangandi, foreldrum og gömlum heimalingum félagsmiðstöðvanna. Félagsmiðstöðvar hafa ekki verið starfandi lengi en fyrsta „tómstundarheimilið" opnaði á Lindargötunni 1. október 1957. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar á þessum 55 árum og eru nú starfræktar félagsmiðstöðvar í flest öllum hverfum og bæjum landsins. Nú er einnig hægt að læra tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands og hefur fagþekking aukist til muna innan veggja félagsmiðstöðva. Félagsmiðstöðvar í dag eru eins konar brú milli grunnskólans og skóla lífsins. Í félagsmiðstöðvunum starfar fagfólk í uppeldisfræðum sem beitir hinum ýmsu verkfærum til að hjálpa unglingunum í sjálfsmyndarleit sinni og má þar nefna leiklist, kvikmyndagerð, íþróttir, ræðumennsku, tónlist, myndlist og þannig mætti lengi telja. Í félagsmiðstöð er enginn námskrá og engin mætingarskylda svo starfið er sveigjanlegt og síbreytilegt eftir þörfum unglinganna. Starfið í félagsmiðstöðvunum byggir á þátttöku ungs fólks og lýðræði. Það eru allir jafnir innan veggja félagsmiðstöðvarinnar og nefndir og ráð á vegum unglinganna sjá um skipulagningu og framkvæmd á starfinu. Þrátt fyrir að vera án námskrár þá eru viss grunn markmið sem allt starfið byggir á. Yfirmarkmið félagsmiðstöðvarinnar er að styrkja sjálfsmynd unglinganna og er það gert með því að vinna með hópa á jákvæðum forsendum til að auka samskiptaþroska og sjálftraust unglinganna. Það er gaman að segja frá því að samkvæmt nýjustu skýrslu Rannsóknar og greiningar mæta 44% af unglingum í 9. og 10. bekk á opin hús á vegum félagsmiðstöðvanna og 74,2% mæta á viðburði á vegum félagsmiðstöðvanna. Þetta háa hlutfall ungs fólks sem mætir af fúsum og frjálsum vilja í þetta opna lýðræðislega uppeldisstarf hljóta að teljast góð tíðindi fyrir íslenskt samfélag. Nú hvet ég þig til að kynna þér hvað félagsmiðstöðin í hverfinu þínu býður upp á í tilefni dagsins, ég hvet þig til að kynna þér það starf sem fram fer í hverfinu þínu og einnig að kynnast starfsfólkinu sem heldur utan um starfið.
Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar
Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar
Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar
Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar
Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar
Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar