17 ára strákarnir lögðu 19 ára strákana Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. mars 2012 21:10 Íslenska liðið sem varð Norðurlandameistari síðasta sumar. Mynd / Páll Jóhannesson
U17 ára landsliðið í knattspyrnu karla lagði kollega sína í U19 ára landsliðinu 3-1 í æfingaleik í Egilshöll í dag. Sindri Björnsson, leikmaður Leiknis í Breiðholti, skoraði tvö marka 17 ára liðsins. Úrslitin eru athyglisverð en komu Kristni R. Jónssyni, þjálfara 19 ára landsliðsins, ekki á óvart en undirritaður heyrði í honum hljóðið í dag. „Við vorum að prufa ýmislegt í leiknum sem við höfum ekki gert áður en það gekk ekki neitt. Þeir eru að undirbúa sig undir mót og eru komnir langt á veg sem er flott," sagði Kristinn sem sagði úrslitin gefa ágæta mynd af leiknum. Kristinn benti einnig á að 19 ára liðið væri skipað leikmönnum fæddum árið 1994. Því muni aðeins ári en ekki tveimur á leikmönnum liðanna en strákarnir í 17 ára liðinu eru flestir fæddir 1995. U17 ára landsliðið heldur eftir viku til Skotlands þar sem liðið leikur í milliriðli Evrópumótsins 2012. Íslenska liðið vann sinn riðil í undankeppninni sem fram fór í Ísrael í október og virðist í góðu standi fyrir milliriðilinn. Andstæðingar liðsins í Skotlandi verða Danir og Litháar auk heimamanna. Efsta sæti riðilsins gefur þátttökurétt í úrslitakeppni EM sem fram fer í maí. Íslenska liðið mætti því danska í úrslitum Norðurlandamótsins norðan heiða síðasta sumar og hafði sigur 1-0. Að sögn Gunnars, þjálfara liðsins, er baráttan um sæti í hópnum afar hörð. Til merkis um það bendir hann á að b-lið Íslands hafnaði í 4. sæti á Norðurlandamótinu síðastliðið sumar. Samkeppnin er ekki síst þegar kemur að stöðu markvarðar þar sem hann telur Íslendinga standa vel að vígi en fjórir flottir markverðir bítast um stöðurnar að sögn Gunnars. Líklegt verður að telja að Orri Sigurður Ómarsson og Óliver Sigurjónsson, leikmenn AGF í Árósum, komi inn í hópinn en þeir voru ekki með í leiknum í dag. Þá er ljóst að Hafnfirðingurinn Þórður Jón Jóhannesson verður ekki með sökum meiðsla. 17 ára hópurinn verður tilkynntur á morgun.
Íslenski boltinn Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira