Frakkar og Svíar spila um gullið á ÓL í London Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2012 21:07 Thierry Omeyer var frábær í franska markinu í kvöld eins og reyndar oft áður. Mynd/AFP
Frakkar eru komnir í úrslitaleikinn í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London eftir þriggja marka sigur á Króatíu, 25-22, í undanúrslitunum í kvöld. Frakkar mæta Svíum í úrslitaleiknum á sunnudaginn en Ungverjar og Króatar spila um bronsið. Frakkar geta því varið Ólympíugullið sitt sem þeir unnu í Peking fyrir fjórum árum eftir sigur á íslenska landsliðinu í úrslitaleiknum. Þeir geta ennfremur unnið sitt sjötta stórmót frá og með árinu 2006. Markaskorið dreifðist mikið hjá franska liðinu í kvöld. Luc Abalo, Samuel Honrubia og Daniel Narcisse voru markahæstir með fjögur mörk en Nikola Karabatic og William Accambray skoruðu allir þrjú mörk. Thierry Omeyer varði 19 skot í markinu. Zlatko Horvat skoraði mest fyrir Króata eða sex mörk. Frakkar byrjuðu leikinn gríðarlega vel, skoruðu þrjú fyrstu mörkin og þvinguðu Slavko Goluza, þjálfara Króata til að taka leikhlé eftir aðeins 4 mínútur. Frakkar komust í 5-1 og voru með ágætt forskot þar til að Króatar minnkuðu muninn í eitt mark, 9-8, þegar sjö mínútur voru til hálfleiks. Frakkar komust aftur þremur mörkum yfir, 12-9, en Króatar áttu lokaorðið fyrir hálfleik og minnkuðu muninn í 12-10. Thierry Omeyer hélt Frökkum á floti í fyrri hálfleiknum þegar hann varði 13 af 23 skotum sem á hann komu eða 57 prósent skotanna. Frakkar voru sterkari í seinni hálfleiknum og náðu mest fim marka forskoti, 18-13 þegar hálfleikurinn var um það bil hálfnaður. Króötum tókst að minnka muninn niður í tvö mörk en nær komust þeir ekki. Úrslitin í undanúrslitunum í dag þýða að tvær þjóðir sem íslenska landsliðið vann í riðlakeppninni, Frakkland og Svíþjóð, mætast í úrslitaleiknum sem sýnir enn frekar hversu nálægt íslenska liðið var því að vinna verðlaun á leikunum. Frakkar unnu alla leiki sína eftir tapið á móti Íslandi.
Mest lesið „Ætla ekki að segja hvað gerðist í þriðja hring“ Sport Guðjón Ingi fagnaði í nótt á nýju brautarmeti Sport Reyna allt til að stöðva að UEFA setji Ísrael í bann Fótbolti Guðmundur rekinn frá Fredericia Handbolti „Ömurleg frammistaða hjá gæjunum í gulu búningunum“ Íslenski boltinn Haaland sýndi morðhótun eftir að hafa náð Solskjær Enski boltinn Braut lítt notaða reglu: „Þetta er mjög áhugavert“ Enski boltinn Sjáðu vítadóminn í Víkinni og öll mörk gærdagsins Íslenski boltinn Sjáðu allt helsta úr stórleiknum og fimmtu umferð Enski boltinn Gullboltinn veittur í kvöld: Dembélé líklegastur til að hreppa hnossið en PSG á leik Fótbolti Fleiri fréttir Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Sjá meira