Katrín réðist á þá sem vörðu grunnstefnuna Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 26. ágúst 2012 18:38 Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra. Mynd/Stefán Karlsson
Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra Vinstri grænna sakar Katrínu Jakobsdóttur varaformann flokksins um að ráðast ómaklega að andstæðingum ESB aðildar. Hann segir forystuna ekki geta hælt sér af því að ganga gegn grunnstefnu flokksins. Í opnunarávarpi sínu á flokksráðsfundi Vinstri grænna sem fram fór um helgina sagði Katrín Jakobsdóttir að það væri miður að margir í forystu VG hafi þurft að sitja undir stöðugum svikabrigslum frá hópi flokksmanna. Hún sagði þann hóp vilja gera flokkinn að einmálshreyfingu sem byggi einungis á andstöðu við Evrópusambandið og aðild Íslands. Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra VG og þingmaður flokksins í norðvesturkjördæmi segir að í ræðu sinni hafi Katrín ráðist beint á þá sem varið hafi grunnstefnu flokksins. „Mér finnst mjög ómaklegt þegar hún veitist að hörðustu andstæðingum ESB aðildar innan flokksins. Þeirra sem hafa staðið vörð um grunnstefnuna frá byrjun, að þeir skuli vera helstu óvinir flokksins að hennar mati og hún kalli þá einsmáls fólk," segir Jón. „Þetta er jú eitt stærsta mál þjóðarinnar. Þannig að mér fannst hún tala um þetta mál af allt of mikilli léttúð, hreinlega eins og hún átti sig ekki á þeirri alvöru sem þarna er á ferð, segir hann. Jón segir að hann og hans skoðanabræður fylgi upphaflegri stefnu flokksins. „Við ætluðum aldrei að sækja um ESB aðild, við lofuðum því í kosningunum," segir hann. „Við höfum misst þrjá þingmenn úr flokknum. Fjöldi forystufólks víða um land hefur einnig sagt skilið við flokkinn og skoðannakannanir sýna að staða flokksins einmitt út af umsókninni er mjög erfið. Mér finnst að það eigi að standa með því fólki sem ver gildin frekar en að vera að tala niður til þeirra því miður," segir Jón. Formaðurinn Steingrímur J. Sigfússon sagði að loknum fundi í gær að samstaða einkenni flokksstarfið nú um stundir. Þessu er Jón ekki sammála. „Það getur enginn hælt sér af því að vera að reka stefnu sem gengur þvert á grunnstefnu flokksins. ESB umsóknin gengur þvert á stefnu flokksins, það er alveg klárt," segir Jón.
Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Sjá meira