Þurfa að halda sig inni vegna ruslalyktar 3. maí 2012 19:00
Grafarvogsbúar hafa fengið sig fullsadda af súrri gaslykt og óþef af rusli sem leggur frá urðunarstaðinum á Álfsnesi og vilja starfsemina burt. Dæmi eru um að íbúar hafi þurft að halda sig inni við vegna ólyktar. Íbúar í Mosfellsbæ og Grafarvogi hafa þurft að búa við lyktar og sjónmengun frá stöðinni um nokkurra ára skeið. Starfsleyfi Sorpu í Álfsnesi rennur út í lok þessa árs og því hefur verið ákveðið að halda íbúafund í kvöld þar sem framtíðaráætlanir verða ræddar. „Þetta er tvennskonarlykt, annars vegar þessi súra gaslykt sem kemur frá þessari svokölluðu seyruholu þar sem er lykt af sterkum úrgangi úr lýsisframleiðslu, holræsarhverfum og sláturhúsum og annað slíkt. Og það er mjög lyktarsterkur úrgangur. Síðan er hin lyktin þessi týpíska ruslalykt, það kemur úr stálinu eða ruslahaugnum sjálfum," segir Rúnar Þór Guðbrandsson, formaður íbúasamtaka Leirvogstungu. Rúnar segir lyktina versta á góðviðrisdögum en dæmi eru um að fólk veigri sér hreinlega við að fara út vegna ástandsins. „Þess vegna höfum við lagt áherslu á það að það sé heppilegt að finna þessari starfsemi annan stað einhvers staðar þar sem þetta sé ekki fyrir augunum á fólki og þar sem þetta sé ekki svona nálægt svov að lyktarmengunin berist yfir byggðina," segir Rúnar. Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, hefur verulegar áhyggjur af starfseminni hér og segir alla flokka vera samstíga í málinu. Því má búast við að hart verði sótt að forsvarsmönnum Sorpu á fundinum í kvöld.
Mest lesið Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Erlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Erlent Fleiri fréttir Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára Sjá meira