Dvöldu í sumarhúsi á Egilsstöðum og sögðust vera í Bandidos 3. maí 2012 21:13 Meðlimur í vélhjólasamtökunum Bandidos. mynd úr safni
Orðrómur um að meðlimir vélhjólagengisins Bandidos hefðu heimsótt Egilsstaði um páskahelgina á ekki við rök að styðjast, segir yfirlögregluþjónn á Egilsstöðum. Það er fréttavefurinn Austurglugginn sem greinir frá þessu. Á borgarafundi um skipulagða glæpastarfsemi í bænum í gær sagði Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Egilsstöðun, að orðrómur hefði verið um að þrír til fjórir einstaklingar, sem gistur í sumarhúsi við Egilsstaði, tengdust samtökunum. „Einn þeirra lét þess getið í orðræði við veitingamann að þeir væru í Bandidos og ætluðu að opna félagsheimili hér eftir þrjár vikur. Við þekkjum þrjá af þessum mönnum en þeir eru ekki í gengjum sem tengjast afbrotum," sagði Óskar á fundinum í gær. Á hádegisfundi á vegum Varðbergs, samtaka um norræna samvinnu og alþjóðamál, sem fór fram í Þjóðminjasafninu í í mars síðastliðnum, sagði Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, að lögreglan hefði heimildir fyrir því að næsti viðkomustaður vélhjólasamtaka væri Egilsstaðir. Bandidos hefur ekki enn haslað sér völl hér á landi en eru með stærstu vélhjólasamtökum í heimi. Á fundinum í gær varaði Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, menn við að hlusta á yfirlýsingar manna á borð við þá sem voru á ferð um páskana. „Menn verða að gæta sína að vera ekki of hræddir. Oft er þetta bara loft sem þessir aðilar bera á borð. Manni virðist ekki hafa verið mikið á bakvið þessa spaða sem þarna voru á ferðinni," hefur Austurglugginn eftir honum.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira