Bætt réttarstaða skuldara Eygló Þóra Harðardóttir skrifar 1. nóvember 2012 08:00 Faðir ábyrgist gengistryggt lán dóttur sinnar. Þegar dóttirin getur ekki lengur borgað af láninu, fellur ábyrgðin á föðurinn. Faðirinn ákveður að greiða lánið upp. Ung hjón kaupa bíl á gengistryggðu láni. Lánið er til fimm ára, og er hálft ár eftir þegar lánið er endurútreiknað. Ungu hjónin greiða samviskusamlega og hafa greitt lánið upp. Miðaldra kona skilur ekki hvernig hægt er að breyta vöxtum einhliða á láni sem hún tók, þrátt fyrir evrópskar reglur um neytendalán. Hver er staða þeirra þegar fjármálafyrirtæki neitar að viðurkenna rétt þeirra til endurútreiknings? Fullkomin óvissa hefur verið uppi um úrlausn á ágreiningi um gengistryggð lán. Allir verða að hafa hagsmuni af því að ljúka málinu og fá niðurstöðu um endurútreikning gengistryggðra lána. Þann hvata hefur vantað og ferlið dregist von úr viti, jafnvel þannig að hagsmunir fjármálafyrirtækjanna hafa legið í að draga málin á langinn og þreyta lántakendur. Ekki virðist nóg að hvetja til endurútreiknings líkt og stjórnarliðar hafa gert á grunni skýrra leiðbeininga frá Hæstarétti Íslands. Stundum er sagt að „money talks". Því hyggst ég leggja fram lagafrumvarp þess efnis að lántakar hafi rétt til að greiða af lánum sínum með föstum greiðslum sem nema 5.000 kr. af hverri upprunalegri milljón lánsins og teljist því í skilum uns niðurstaða liggur fyrir í Hæstarétti um hin ýmsu ágreiningsefni. Jafnframt er ítrekaður sá skilningur að lántaki getur aldrei hafa verið í vanskilum með lán eða lánasamninga, sem þessi lög taka til, þar sem þau hafi verið með ólögmæta skilmála. Inni lántaki af hendi að lágmarki þá greiðslu sem hér er lagt til, telst hann vera í fullum skilum með afborganir af láninu. Tryggja þarf að lántakar fái ofgreiðslur sínar endurgreiddar með tryggingum og handveðum í ljósi reynslunnar af Avant. Jafnframt er lagt til að dráttarvextir reiknist af ofgreiddum kröfum 30 dögum eftir gildistöku laganna. Lántakar munu ekki þurfa að senda sérstakt kröfubréf þess efnis. Að lokum er lagt til að fjármálafyrirtæki verði skylduð til að láta viðskiptavini sína fá upplýsingar um greiðslusögu lána og forsendur endurútreiknings ef viðskiptavinurinn þess óskar. Stjórnvöld verða að fara að setja fjármálafyrirtækjunum stólinn fyrir dyrnar, ef þau spýta ekki í lófana við endurútreikninginn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar