Vilja leyfa áfengisauglýsingar BBI skrifar 1. nóvember 2012 19:28 Mynd úr safni.
Félag atvinnurekenda vill að áfengisauglýsingar séu að meginreglu heimilar en þó með ströngum takmörkunum. Félagið sendi Alþingi umsögn um fyrirhugaðar breytingar á áfengislögum sem miða að því að skýra bann við áfengisauglýsingum. Eins og fjallað hefur verið um á Vísi og í Fréttablaðinu hefur mikið borið á áfengisauglýsingum síðustu misseri þrátt fyrir að þær séu í orði kveðnu ólöglegar. Með breytingum á áfengislögum stendur til að herða bannið gegn slíkum auglýsingum, m.a. með því að gera auglýsingar ólöglegar á léttöli í sambærilegum umbúðum og áfengur bjór. Félag atvinnurekenda telur að það frumvarp sé haldið verulegum annmörkum. Auglýsingabannið er talið óraunhæft og erfitt í framkvæmt og þykir auk þess brjóta gegn stjórnarskrárbundnu tjáningarfrelsi og stjórnskipulegri meðalhófsreglu.Tjáningarfrelsi Stjórnarskráin ver tjáningarfrelsi almennings en þar kemur einnig fram að heimilt sé að hefta tjáningarfrelsi fólk í ákveðnum tilgangi, m.a. til verndar heilsu fólks. Þær skorður mega hins vegar ekki vera umfangsmeiri en nauðsynlegt er. Með því að banna áfengisauglýsingar alfarið telur Félag Atvinnurekenda að gengið sé of langt, þ.e. meðalhófsregla stjórnarskrár sé brotin. Þeir benda t.d. á að rannsóknir sýni að áfengisauglýsingar auki ekki magnið sem neytendur kaupa af áfengi og því séu þær ekki besta úrræðið til að vernda heilsu almennings. Vert er að benda á að íslenskir dómstólar hafa áður skorið úr því álitaefni hvort bann á áfengisauglýsingum sé andstætt stjórnarskrá og komist að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki. Í dómi Hæstaréttar númer 648/2006 var því til að mynda slegið föstu að bann við áfengisauglýsingum bryti hvorki í bága við stjórnarskrá né Mannréttindasáttmála Evrópu. Félag atvinnurekenda vill engu að síður meina að vafi leiki á því hvort auglýsingabannið geti brotið gegn stjórnarskrá, t.d. sökum þess að áfengisbannið gangi lengra en þörf krefur til að vernda þá hagsmuni sem áfengisbannið byggist á, samkvæmt upplýsingum frá Björg Ástu Þórðardóttur, lögfræðingi hjá Félagi atvinnurekenda.Áfengisauglýsingar að meginreglu heimilar Félagið vill að áfengisauglýsingar séu almennt leyfðar en þó með skýrum takmörkunum. „Það yrði að útfæra þær nánar, en t.d. mætti kannski sýna bjór og bjórmerki í auglýsingunum en ekki tengja það við ánægjulega upplifun eða gleði," segir Björg. Félagið leggst því gegn því að bann við áfengisauglýsingum sé hert.Hér má nálgast umsögn Félags atvinnurekenda, en athygli var vakin á henni inn á vef spyr.is í dag.
Tengdar fréttir Áfengisauglýsingar færast á Facebook „Þessar auglýsingar eru að færast rosalega mikið inn á Facebook og alla þessa miðla,“ segir Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum. 31. október 2012 08:00 Telur áfengisauglýsingum hafa fjölgað Siv Friðleifsdóttur var misboðið þegar hún sá áfengisauglýsingar sem áttu að höfða til ungs fólks. 29. október 2012 19:52 Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira
Áfengisauglýsingar færast á Facebook „Þessar auglýsingar eru að færast rosalega mikið inn á Facebook og alla þessa miðla,“ segir Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum. 31. október 2012 08:00
Telur áfengisauglýsingum hafa fjölgað Siv Friðleifsdóttur var misboðið þegar hún sá áfengisauglýsingar sem áttu að höfða til ungs fólks. 29. október 2012 19:52