Innlent

Áfengisauglýsingar færast á Facebook

SH skrifar
Stjórnarmaður í SÍA segist ekki horfa svo á erlendan fótboltaleik í sjónvarpinu að þar séu ekki bjórauglýsingar án fyrirvara um að átt sé við „léttöl“.
Stjórnarmaður í SÍA segist ekki horfa svo á erlendan fótboltaleik í sjónvarpinu að þar séu ekki bjórauglýsingar án fyrirvara um að átt sé við „léttöl“.
„Þessar auglýsingar eru að færast rosalega mikið inn á Facebook og alla þessa miðla,“ segir Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum.

Innlendir áfengisframleiðendur og -birgjar nýta sér í auknum mæli samfélagsmiðla, einkum Facebook, sem auglýsingavettvang. Ólíkt því sem tíðkast í sjónvarps- og blaðaauglýsingum er í vefauglýsingum alla jafna ekki gerður fyrirvari um að um léttöl sé að ræða.

Foreldrasamtökin sem Árni fer fyrir halda úti heimasíðunni Foreldrasamtok.is þar sem hægt er að senda nafnlausar ábendingar um áfengisauglýsingar, ekki síst þær sem taldar eru beinast að börnum.

Árni segir að mjög margar tilkynningar berist um auglýsingar á Facebook. „Við höfum bent fólki á að ýta á tilkynningarhnappinn og kvarta yfir því að þarna sé um ólöglega áfengisauglýsingu að ræða – að minnsta kosti á Íslandi.“

Þá er að mati Árna ekki víst að síður á borð við Facebook séu utan íslenskrar lögsögu enda beinist markaðssetningin sérstaklega að íslenskum notendum. Hann telur að helsta ástæða þess að menn leyfi sér að gera þetta sé sú að mál af þessu tagi séu ekki tekin alvarlega hjá lögregluyfirvöldum. Hann bendir á að enginn dómur hafi fallið fyrir ólöglega auglýsingu á áfengi frá því árið 2009.

Valgeir Magnússon, stjórnarmaður í Samtökum íslenskra auglýsingastofa, segist ekki vera lögfróður maður. „En ég veit að þegar ég horfi á fótbolta um helgi, þá eru bjórauglýsingar á fótboltavellinum án þess að það sé sett léttöl yfir í íslensku útsendingunni. Það er voða flókið að vera með önnur lög en umheimurinn af því að við erum ekki lengur lokað land.“

Hann segir það ekki óeðlilegan farveg að auglýsendur leiti í auknum mæli inn á netið. „Og ég held að það væri nær að kenna auglýsingalæsi í staðinn fyrir að rembast við að hefta hluti sem er ekki hægt að hefta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×