Aðeins 1.099 áhorfendur mættu að meðaltali á leikina sex í 5. umferð Pepsi-deildar karla sem lauk í gærkvöldi. Flestir sáu KR-inga leggja FH-inga að velli í Vesturbæ en fæstir markaveislu Selfoss og Grindavíkur.
3-3 jafntefli Selfoss og Grindvíkur var líklega einn skemmtilegasti leikur sumarisns en einnig sá aðsóknarminnsti. Aðeins 534 áhorfendur létu sjá sig í stúkunni.
Flestir áhorfendur eða 2.242 sáu Íslandsmeistara KR leggja FH 2-0 að velli. Engu að síður olli aðsóknin nokkrum vonbrigðum enda um stórslag að ræða sem var eini leikur miðvikudagskvöldsins.
Aðsóknarmesti leikur sumarsins hingað til var viðureign ÍA og KR á Skipasaga. 3.054 áhorfendur sáu Skagamenn vinna 3-2 sigur.
Þar til í gærkvöldi var aðsóknarminnsti leikur sumarsins önnur markaveisla. Þá skunduðu 622 áhorfendur á Laugardalsvöllinn og sáu Fram leggja Grindavík 4-3 í stórskemmtilegum leik.
Grindvíkingar eiga því þann vafasama heiður að vera annað liðanna í tveimur aðsóknarminnstu leikjum sumarsins. Þeim til varnar voru báðir leikirnir á útivelli.
Áhorfendatölur á leikjum 5. umferðar Pepsi-deildar karla:
KR - FH 2242
Fylkir - Valur 833
Keflavík - ÍBV 930
Stjarnan - ÍA 1237
Selfoss - Grindavík 534
Breiðablik - Fram 820
Fámennt í markaveislu Selfoss og Grindavíkur
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Mest lesið



Stjarnan staðfestir komu Caulker
Íslenski boltinn



Gæti orðið dýrastur í sögu KR
Íslenski boltinn

Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“
Íslenski boltinn


Flagg fer til Dallas
Körfubolti
