Exista búið að gera upp við Arion banka 9. desember 2011 00:01 Arion banki Samkomulag um uppgjör deilumála bankans við Klakka/Exista var undirritað í sumar.Fréttablaðið/Pjetur
Viðskipti Eignarhlutur Arion banka í Klakka, sem hét áður Exista, jókst úr 19,6% í 44,9% eftir að bankinn gerði samkomulag við félagið síðastliðið sumar um uppgjör deilumála milli aðilanna. Þetta staðfestir Magnús Scheving Thorsteinsson, forstjóri Klakka/Exista. „Í sumar var gengið frá samkomulagi um uppgjör allra deilumála við Arion. Í því fólst að hlutur Arion í Klakka jókst með þessum hætti.“ Klakki/Exista gekk í gegnum nauðasamning haustið 2010. Í honum fólst meðal annars að kröfuhafar þess breyttu 10% af 239,1 milljarðs króna kröfum í hlutafé. 90% krafnanna var síðan breytt í kröfur sem breytanlegar eru í hlutabréf í félaginu ef því tekst ekki að greiða eftirstöðvum skuldanna fram til loka árs 2030. Við þetta lækkuðu skuldir Klakka/Exista-samstæðunnar um 308 milljarða króna. Það er stærsta staðfesta niðurfærsla á lánum til íslensks fyrirtækis, ef föllnu bankarnir eru frátaldir. Eftir gerð nauðasamningsins hafa fleiri kröfur verið samþykktar og gefið út nýtt hlutafé í samræmi við þær. Sú stærsta er vegna uppgjörsins við Arion banka síðastliðið sumar þegar bankinn fékk 6,1 milljarð króna í nýju hlutafé afhent. Við það fór eignarhlutur bankans úr 19,6% í 44,9%. Hann er langstærsti eigandi Klakka/Exista. Næstir honum koma þrír erlendir vogunarsjóðir með samtals 17,5% hlut. Klakki/Exista tapaði 10,5 milljörðum krónum í fyrra. Eigið fé þess er þó jákvætt um 65 milljarða króna, sem er gríðarlega sterk staða. Helstu eignir félagsins eru rekstrarfélög með mikla markaðshlutdeild á Íslandi. Þeirra helst eru Skipti (móðurfélag Símans, Mílu og Skjásins), VÍS, Lífís og Lýsing hf. Í sumar samdi Arion banki einnig við skilanefnd Kaupþings um að ákveðnar eignir flyttust á milli þeirra. Eignir sem hafa legið hjá skilanefndinni og tengjast Klakka/Exista eru ekki þar meðtaldar, samkvæmt upplýsingum frá bankanum. Á meðal þeirra eigna voru krafa vegna skaðleysisyfirlýsingar vegna kaupa á hlutabréfum í finnska félaginu Sampo sem skilanefndin átti á Klakka/Exista upp á 588 milljónir evra, um 93,6 milljarða króna. Þar undir eru líka opnir framvirkir gjaldeyrissamningar sem félagið vildi áður gera upp með tugmilljarða hagnaði en bíða nú niðurstöðu dómstóla. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira