Mikil ferðagleði Íslendinga, 319.000 hafa farið utan í ár 9. desember 2011 07:01
Meir en hálf milljón erlendra ferðamanna hafa heimsótt Ísland það sem af er árinu. Ferðir Íslendinga utan aftur á móti jafngilda því að hver íbúi landsins hafi farið til útlanda í ár. Fjallað er um þessa ferðagleði í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Fjöldi erlendra ferðamanna slær öll met í ár en fram til þessa hafa 520.000 manns heimsótt Ísland. Sennilega verður sú tala nálægt 600.000 manns þegar árinu lýkur enda eru nær öll hótel og gistihús borgarinnar fullbókuð yfir jólin. Á móti kemur að ferðir Íslendinga erlendis hafa farið stigvaxandi frá hruninu 2008. Þannig segir í Morgunkorninu að fleiri Íslendingar hafi látið undan útþrá sinni í nóvember síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Slík fjölgun hefur verið stöðugt frá því í nóvember árið 2009, að apríl í fyrra undanskildum. Í nóvember síðastliðnum fóru rúmlega 26.000 Íslendingar, eða yfir 8% þjóðarinnar, frá landinu um Leifsstöð. Frá áramótum talið hafa tæplega 319.000 Íslendingar, eða sem nemur allri þjóðinni, ferðast erlendis. Sé tekið mið af árinu 2009 er þetta fjölgun upp á tæp 34%.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira