Söluvirði útboðsins hjá Högum tæpir 5 milljarðar 9. desember 2011 07:56
Endanleg stærð útboðsins hjá Högum nemur 30% af útgefnum hlutum félagsins og endanlegt útboðsgengi er 13,5 krónur á hlut til allra kaupenda í útboðinu sem eru um 3.000 talsins. Heildarsöluandvirði útboðsins nemur rétt tæpum 5 milljörðum króna. Í tilkynningu segir að vegna mikillar eftirspurnar fengu fjárfestar ekki nema brot af þeim hlutum sem þeir buðu í. Um 12,5% af útgefnum hlutum Haga var úthlutað til fjárfesta sem skráðu sig fyrir kaupum að andvirði frá 100.000 krónum og upp í 25 milljónum króna og var hverjum aðila úthlutað hlutabréfum að andvirði um 0,1-1,5 milljónum króna. Um 17,5% af útgefnum hlutum Haga var úthlutað til fjárfesta sem skráðu sig fyrir kaupum að andvirði 25-500 milljónum króna og var hverjum aðila úthlutað hlutabréfum að andvirði um 1,5-90 milljónum króna. Í útboðinu bárust gild tilboð um kaup fyrir alls um 40 milljarða króna og voru um 95% þeirra gerð á genginu 13,5 kr./hlut eða með samþykki um hvaða gengi sem yrði ákveðið á bilinu 11-13,5 kr./hlut. Ákvörðun seljanda um endanlega stærð útboðs, verð, skiptingu og úthlutun tók mið af fjárhæð og gengi áskrifta frá fjárfestum, eðli og stærð fjárfesta, markmiðum og skilmálum útboðsins sem gerð var grein fyrir í lýsingu Haga dagsettri 26. nóvember 2011. Markmið seljandans var að útboðið markaði grunninn að dreifðu eignarhaldi almennings og fagfjárfesta á Högum, auk þess að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína, að því er segir í tlkynningunni.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira