Ótrúlegt korter sá um Japana Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. janúar 2011 16:57 Íþróttaálfurinn svokallaði var kaffærður í leiknum í kvöld. Mynd/Valli
Ísland sýndi ótrúleg tilþrif á fyrsta stundarfjórðungnum gegn Japan í kvöld sem gaf tóninn fyrir yfirburðasigur. Lokatölur 36-22.Leikurinn var gríðarlega hraður og staðan eftir þrjár mínútur var orðin 3-2 fyrir Íslandi. Þá tóku strákarnir sig til og skoruðu tíu mörk í röð. Það dugði til að klára leikinn og sigldi íslenska liðinu sigrinum auðveldlega í höfn. Alexander Petersson átti ótrúlegan fyrri hálfleik. Hann var gríðarlega duglegur í vörninni, stal mörgum boltum, gaf fullt af stoðsendingum og skoraði mörk. Reyndar stóðu allir sig vel í kvöld. Allir sem tóku þátt í sóknarleiknum komust á blað en Ólafur Stefánsson fékk kærkomna hvíld og spilaði ekkert vegna hnémeiðslanna. Björgvin Páll var góður í fyrri hálfleik og Hreiðar Levý alls ekki síðri í síðari hálfleik. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var duglegur að nota gefa öllum tækifæri og þar með dreifðist álagið vel. Daisuke Miyazaki, eða íþróttaálfurinn eins og hann er kallaður hér á Vísi, átti dapran dag. Hann skoraði tvö mörk úr átta skotum og tapaði fjórum boltum. Japanar þurftu svo fimm tilraunir á vítalínunni til að nýta loksins vítaskot. Ísland er því enn með fullt hús stiga í B-riðli og trónir þar á toppnum. Næst mætir Ísland Austurríkismönnum annað kvöld og eiga strákarnir þar harma að hefna.Ísland - Japan 36-22 (22-8)Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson 9 (11), Þórir Ólafsson 7(7), Alexander Petersson 5 (7), Snorri Steinn Guðjónsson 4/1 (6/1), Vignir Svavarsson 3 (4), Aron Pálmarsson 1 (1), Ingimundur Ingimundarson 1 (1), Sverre Jakobsson 1 (1), Róbert Gunnarsson 1 (1), Sigurbergur Sveinsson 1 (3), Kári Kristjánsson 1 (3), Ásgeir Örn Hallgrímsson 1 (4), Arnór Atlason 1 (4).Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 10/1 (18/1, 56%), Hreiðar Levy Guðmundsson 14/2 (28/5, 50%).Hraðaupphlaupsmörk: 16 (Guðjón Valur 6, Þórir 4, Vignir 2, Ingimundur, Snorri Steinn, Alexander, Sverre)Fiskuð víti: 1 (Róbert)Brottvísanir: 14 mínútur.Smelltu hér til að opna Boltavaktina: Ísland - Japan.Úrslit, staða og leikjadagskrá HM.
Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira