Mál gegn Kaupþingi og Milestone komin lengst 5. október 2011 19:32 Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari bankahrunsins. mynd úr safni
Rannsókn á málefnum fjárfestingarfélagsins Milestone og rannsókn á markaðsmisnotkun í Kaupþingi banka eru þau mál sem eru lengst komin hjá sérstökum saksóknara. Rannsóknum ætti að ljúka fyrir árslok. Á þeim þremur árum sem liðin eru frá bankahruni og tveimur og hálfu ári frá því sérstakur saksóknari tók til starfa hefur embættið gefið út ákærur í tveimur málum. Svokölluðu Exeter-máli og máli Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru tvö önnur mál mjög langt komin og það langt komin að nú sér fyrir endann á rannsóknum þeirra. Annars vegar er um að ræða rannsókn á málefnum fjárfestingarfélagsins Milestone og hins vegar þeim hluta Kaupþingsrannsóknar er lýtur að fjárfestingu sjeik Mohamed Bin Khalifa Al-Thani í bankanum, en þar er grunur um markaðsmisnotkun. Helstu stjórnendur Kaupþings hafa verið ítrekað yfirheyrðir í málinu en þeir hafa alltaf haldið því fram að um eðlileg viðskipti hafi verið að ræða með áhættu sjeiksins. Rannsókn á málefnum fjárfestingarfélagsins Milestone og tryggingafélaginu Sjóvá sem var dótturfélag þess, hófst með húsleit sérstaks saksóknara í júlí 2009 en málið hafði áður verið til rannsóknar hjá FME. Bæði Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvár, og Karl Wernersson, fyrrverandi stjórnarformaður Milestone, eru grunaðir um refsiverða háttsemi og hafa því réttarstöðu sakborninga í málinu. Í málinu eru til rannsóknar brot á lögum um vátryggingarstarfsemi og umboðssvik samkvæmt almennum hegningarlögum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er rannsókn á málefnum Milestone og Sjóvár það mál sem lengst er komið hjá embætti sérstaks saksóknara, sem ekki hefur verið ákært í. Fréttastofa náði í dag tali af Karli Wernerssyni, en hann vildi ekkert tjá sig um málið. Þá vildi hann ekki hlýða á spurningar fréttastofunnar.
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira