Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur Kristján Már Unnarsson skrifar 9. nóvember 2011 18:56
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa. Svörin sem Vestfirðingar gáfu Ögmundi Jónassyni á Patreksfirði í haust, þegar hann boðaði að Vestfjarðavegur skyldi endurbyggður yfir Hjallaháls og Ódrjúgsháls en ekki lagður um Teigsskóg, gátu ekki orðið skýrari. Þeir mótmæltu með því að ganga út og berja búsáhöld. Í dag var Ögmundur spurður á Alþingi hvað hann ætlaði að leggja til næst og kvaðst hann ætla að láta skoða allt, jarðgöng, fjarðaþveranir og sjávarfallavirkjun yst í Þorskafirði. Allir láglendiskostir skuli skoðaðir, nema sá að fara í gegnum Teigsskóg. ,,Ég tel að sú leið sé algerlega út úr kortinu," sagði Ögmundur. Kristján L. Möller kvaðst í sinni ráðherratíð hafa átt marga samráðsfundi um málið með heimamönnum og sannfærst um að eina færa leiðin til að leggja láglendisveg um Gufudalssveit væri svokölluð B-leið, sem er um Teigsskóg. Ögmundur svaraði Kristjáni með þeim orðum að kominn væri tími til að menn losuðu um þráhyggjuskrúfuna á sálartetrinu. ,,Við setjum hálendisleiðina til hliðar og líka Teigsskóg. Og við skoðum aðra kosti."
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Fleiri fréttir „Mjög margar perlur á Íslandi sem verða alltaf varasamar“ Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Sjá meira