Ólafur: Heppnir að vera ekki refsað Hjalti Þór Hreinsson í Boganum á Akureyri skrifar 25. maí 2011 21:27
Ólafur Örn Bjarnason, spilandi þjálfari Grindavíkur, var ánægður með sigur sinna manna á KA í kvöld. Hann stóð sjálfur vaktina í vörninni. "Við skutum sjálfa okkur í fótinn með því að gera þetta spennandi. Við fengum fullt af dauðafærum til að klára leikinn og vorum sjálfum okkur verstir. Við gefum þeim svo mark, við fengum tvö tækifæri til að hreinsa en nýtum það ekki. Það gerði leikinn spennandi." "Það var margt jákvætt í leiknum en þurfum að vera skynsamari í ákveðnum hlutum á mikilvægum augnablikum. Það er ekki nóg að ætla að gera þetta með hálfum hug. Það hefur verið svolítið þannig undanfarið en sem betur fer var okkur ekki refsað fyrir að vera ekki nógu beittir." "En þó að ég tali svona er ég ánægður með úrslitin og bikarinn snýst bara um eitt, að komast áfram,” sagði Ólafur en vegna óvissu með samgöngur komu Grindvíkingar norður í gær. “Við keyrðum í gær og gistum á heimaslóðum Jóhanns Helgasonar. Móðir hans er þar með bústaði og úr varð góð ferð, sigur og fínt hópefli,” sagði Ólafur sem sagðist þó ekki hafa fengið pönnsur og lúxus, en Greifapizzan hafi runnið ljúflega niður. Sem stendur er Þór að æfa í Boganum en Grindvíkingar mæta einmitt Þorpurum á mánudaginn í Pepsi-deildinni. Ólafur sagðist ekki ætla að horfa á æfinguna. “Neinei, nú drífum við okkur bara heim. Við verðum að passa okkur á mánudaginn, við lögðum upp með í kvöld að lenda ekki í neinu veseni en það gekk ekki eftir. Við lögum það,” sagði Ólafur.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun: Bikarhefnd Grindvíkinga á KA Grindavík er komið í 16-liða úrslit Valitor-bikarsins eftir 1-2 sigur á KA í Boganum á Akureyri í kvöld. Sanngjörn úrslit í skemmtilegum leik. 25. maí 2011 18:31 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira
Umfjöllun: Bikarhefnd Grindvíkinga á KA Grindavík er komið í 16-liða úrslit Valitor-bikarsins eftir 1-2 sigur á KA í Boganum á Akureyri í kvöld. Sanngjörn úrslit í skemmtilegum leik. 25. maí 2011 18:31