Austurríki vann Portúgal í einvígi sænsku þjálfaranna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2011 13:45 Ronald Schlinger tryggði Austurríki sigurinn. Mynd/DIENER
Austurríkismenn eru að undirbúa sig fyrir HM í handbolta eins og strákarnir okkar í íslenska landsliðinu en liðin verða saman í riðli í Svíþjóð. Austurríki vann nauman 30-29 sigur á Portúgal í gær en þjóðirnar mætast síðan aftur í kvöld. Þetta var einvígi tveggja sænskra þjálfara því Magnus Andersson tók við liði Austurríkis af Degi Sigurðssyni og Mats Olsson þjálfar portúgalska landsliðið eins og hann hefur gert undanfarin ár. Þeir félagar léku á sínum tíma saman með sænska landsliðinu, Andersson sem leikstjórnandi og Olsson sem markvörður. Ronald Schlinger skoraði sigurmark Austurríkis í leiknum en Robert Weber var markahæstur með sjö mörk og Victor Szilagyi skoraði sex mörk. Austurríki var 17-12 yfir í hálfleik en Portúgalir voru búnir að vinna upp forskotið eftir tuttugu mínútur. „Austurríska liðið er með mjög gott byrjunarlið en það er aðeins spurning um hvort liðið hafi breiddina til þess að eiga eitthvað í bestu liðin. Liðið er samt í góðum höndum hjá Magnusi Andersson," sagði Mats Olsson. Austurríki náði jafntefli á móti Þjóðverjum og vann fimm marka sigur á íslenska landsliðinu í undankeppni EM og það er ljóst að liðið verður eitt af erfiðustu mótherjum strákanna okkar í riðlinum á HM í Svíþjóð.
Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira