Íslenski boltinn

Haraldur: Vannst á návígjunum

Hjalti Þór Hreinsson á Þórsvelli skrifar
Haraldur Björnsson markmaður Vals segir að 3-0 sigurinn á Þór í kvöld hafi verið sanngjarn. Valsmenn komust á topp Pepsi-deildarinnar með sigrinum.

"Við lögðum upp með að berjast vel, við vitum að þeir gera það og leggja mikið upp úr því. Það var markmiðið að hafa betur í návígjunum og ef það heppnast þá á hitt að koma."

"Þetta gekk upp og mér fannst við bara betri. Við spiluðum betri fótbolta og áttum sigurinn skilinn," sagði Haraldur sem bíður nú spenntur eftir stórleiknum við KR sem er á næsta leiti.

"Það verður svakalegur slagur í Frostaskjólinu," sagði markmaðurinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×